Sjómannadagsblaðið - 06.06.1948, Blaðsíða 47
Neptúnus að i{oma úr lunni jrægu veiðiför með metsöluajlann innanborðs.
frá Reykjavík og Hafnarfirði. Sjómennirnir á þessum
skipum voru um 1500, en mannfjöldi í Reykjavík var
^ sama tíma um 20.000.
Arin liSu, skipin færðu mikinn auð að landi, vel-
niegun óx en skipin hrörnuðu. Sífellt var þrengt að
kag útgerðarinnar til þarfa þjóðarbúsins, ýmsar álögur
v°ru uppfundnar, alskyns skattar voru útbúnir, allt
uiður í kirkjugarðsgjald var lagt á þessar fögru fleytur.
Rétt fyrir 1939 var það orðinn vafasamur heiður
að vera tilnefndur í sambandi við togaraútgerð á ís-
landi, og ryðdollur og manndrápsfleytur var orðið
samheiti í munni almennings um þessi skip.
kJpp úr síðari heimsstyrjöldinni verður fjöldi nýju
togaranna sá sami og upp úr þeirri fyrri. En á ný
€ru Þeir glæsilegustu skip þessarar tegundar sem veið-
ar stunda við ísland og þó víðar væri leitað. Nú er
sa munur að þeim hefir verið dreift á fleiri útgerðar-
staði, enda þótt megnið af þeim sé gert út frá Reykja-
'ik og Hafnarfirði. Fjöldi þeirra sjómanna sem vinnur
á togurunum er enn sem fyrr um 1500. En íbúatala
höfuðborgarinnar hefir vaxið upp í 50.000 manns, og
það er talandi tákn sem vert er að hugleiða jafnhliða,
að á sama tíma sem togarasjómannastétt landsins er
um 1500 manns, er embættismannastétt landsins í
höfuðborginni einni um 1800 manns.
Ef bera ætti saman tímabilið frá því í lok fyrri
heimsstyrjaldar og þeirrar síðari, ætti fjöldi nýsköp-
unartogaranna nú að vera um 60 skip og skipverjar að
vera um 3000 manns.
Þess í stað virðist helzt sem forráðamenn þjóðarinn-
ar hafi ofreynt sig við að kljúfa brattann upp út lág-
inni sem togarafloti landsmanna var sokkinn í, og líti
nú með velþóknun hins þreytta á hálffarinn veg og
segi, sjá hér hve langt ég er kominn, og setjist svo
til vel forþénaðrar hvíldar í miðri brekku og snúi
baki við tindinum.
Það er því talvalið tækifæri nú, þegar einn af ný-
sköpunartogurunum vekur heimsathygli á íslenzkum
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 27