Sjómannadagsblaðið - 03.06.1963, Blaðsíða 40
Er kappróðurinn fer fram, er ætíð mikill spenningur og fólk hópast niður að höfn til að fylgjast með róðrinum, sundinu og öðru,
er þar fer fram á vegum Sjómannadagsins.
Sjómannadagurinn í Reykjavík 1962
25. Sjómannadagurinn fór fram í
Reykjavík sunnudaginn 3. júní 1962.
Sjómannadagsblaðið kom út í há-
tíðabúningi. I því var m. a. rakin
saga Sjómannadagsins fyrstu 25 árin
og aðdragandinn að stofnun hans.
Auk þess var blaðið fjölbreytt að
efni og vel myndskreytt og kom út
í 8000 eintökum sem seldust upp.
Veður var óhagstætt, oftast rign-
ing og kalsi og hafði það sín áhrif til
að draga úr aðsókn að útihátíðahöld-
unum, en þau fóru fram með svip-
uðum hætti og undanfarin ár. Skip
í höfninni voru fánum skreytt og
eins blöktu fánar víðsvegar um bæ-
inn.
Kl. 10.30 var hátíðamessa í Laug-
arásbíói. Biskup Islands hr Sigur-
björn Einarsson messaði. Söngstjóri
var Jón S. Þórarinsson. Guðsþjón-
ustan var hin hátíðlegasta og vel
sótt og var henni útvarpað. — Að
lokinni messu flutti formaður Sjó-
mannadagsráðs, Pétur Sigurðsson
stutt ávarp og lýsti opnun nýrrar
vistmannabyggingar, sem rúmar um
70 manns. Þá afhenti hann sem gjöf
frá Sjómannadeginum til Hrafnistu
málverk af Sigurgeiri heitnum Sig- Kl. 14.00 hófust hátíðahöldin með
urðssyni biskupi, gert af Magnúsi því að sjómannafélögin mynduðu
A Arnasyni. fánaborg á Austurvelli og Lúðra-
Þeir hlutu heiðursverðaun Sjómannadagsins. Efri röð frá vinstri: Guðmundur Árnason,
Daníel Pétursson, Guðmundur Dagfinnsson, Þorsteinn Árnason, Garðar Jónsson. Fremri
röð frá vinstri: Snæbjörn Olafsson, Bjarni Jónsson og Kolbeinn Sigurðsson.
26 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ