Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1981, Blaðsíða 23

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1981, Blaðsíða 23
Sjötugur: Jónas Sigurðsson, skólastjóri Stýnmannaskólans Eins og frá er skýrt á öðruni stað í blaðinu. heldur Stýriiuannaskólinn nú upp á 90 ára afmæli sitt, og svo vill til að um það leyti varð skólastjórinn, Jónas Sigurðsson, sjötugur, og lætur því af störfum nú í vor, eftir nær 40 ára starf við skólann, en í tvo áratugi var hann þar kennari, eða frá árinu 1942—1962, en hann tók við skólastjórn af Firðrik V. Ólafssyni, er þá féll frá. Jónas Sigurðsson fæddist að Ási í Garðahreppi, en sá bær er sunnan Hafn- arfjarðar, 13. mars árið 1911 og voru for- eldrar hans þau Sigurður Jónsson, bóndi og sjómaður í Ási og síðari kona hans Guðrún Árnadóttir. Sigurður bóndi stundaði sjóinn að vetrarlagi og hann fórst með togaranum Geir árið 1912. þannig að fyrstu kynni Jónasar af sjónum voru eigi blíð. Síðar missti hann Ásmund bróður sinn í hafið. en hann fórst með Reykjaborginni. sem var skotin niður í stríðinu af Þjóðverjum, sem murkuðu skipshöfnina niður með vélbyssu- og fallbyssuskothríð. og urðu aðeis tveir særðir menn á fleka til frá- sagnar um þetta atvik, en þetta var í byrj- un stríðs árið 1941. Jónas fór sem unglingur 1 Flensborgar- skólann í Hafnarfirði. og síðan í Mennta- skólann i Reykjavík, þrátt fyrir rýr efni. Lauk hann stúdentsprófi árið 1930 og sigldi síðan til náms í vélaverkfræði við Technische Hochschule í Dajmstadt í Þýskalandi, þar sem hann lauk fyrri- hlutaprófi í vélaverkfræði þremur árum síðar, eða árið 1932. munu bræður hans hafa kostað hann til náms, en þá var kreppan í algleymingi, og kom Jónas heim til íslands, og þá lá leiðin strax á sjóinn. Án efa til þess að afla tekna til háskólanámsins. en af því varð þó ekki. Stríðið braust út og lokaði námsbrautinn í Evrópu og Jónas ílentist á íslandi og á sjónum. Hann hóf nám við Stýrimannaskólann; lauk þaðan fiskimannaprófi árið 1940 og farmannaprófi árið 1941. Þá mun Friðrik V. Ólafsson hafa komið að máli við hann og boðið honum að gerast kennari við Stýrimannaskólann, og jafnframt gafst honum kostur á að nema stjörnufræði, siglingafræði og stærðfræði við Berkeley háskólann í Kaliforníu í Bandaríkjunum. Var Jónas þar við háskólanám í þessum fræðum um eins árs skeið og kom síðan heint til þess að kenna. og það hefur hann gjört síðan, en auk þess var hann urn ára- bil farsæll og fengsæll skipstjóri á hval- bátum. en þeir eru senr kunnugt er, aðeins gerðir út yfir sumarmánuðina, þegar skólar starfa ekki. Jónas Sigurðsson hefur verið einkar farsæll í störfum sínum við Stýrimanna- skólann. Hann er Ijúfur maður og flug- gáfaður. Lika nútímamaður í besta skiln- ingi þess orðs. Hann er afburða kennari, sem kann sitt fag og aðrar hliðar skóla- haldsins hefur hann einnig annast af alúð, þannig að skólinn hefur haft sæmd af veru hans þar. Sem skólastjóri, kom það i hans hlut að móta skólann að miklum breytingum í siglingafræði, eða siglingatækni. Þetta kann nú að virðast eðlilegur hlutur, en þó er mikið í húfi, er meta skal gildi nýrra siglingatækja, og hverju af því gamla ber að hafna. Mér skilst að Jónas Sigurðsson hafi viljað fylgja þeirri stefnu kenna gamla stílinn áfram til fulls og líta á nýja tækni sem viðbót, og er sú stefna farsæl. En hvað um það, skóli hans nýtur virð- ingarog skilríki frá honum eru tekin gild svo að segja hvar sem er í hinum sið- menntaða heimi. Þeir sjómenn er ráðist hafa til starfa erlendis, hafa getið sér gott orð hvað kunnáttu og þekkingu snertir og við eigum úrvalsmönnum á að skipa til sjós, hvort heldur það er á fiskiskipum, kaupförum. eða varðskipum. Jónas Sigurðsson hefur í sinni tíð kappkostað að afla þekkingar til skólans. Hann hefur farið í ótal náms- og kynnis- ferðir til þess að kynnast nýjungum, og kennsluháttum í sjómannaskólum er- lendis. Hann hefur flutt þessa þekkingu heim og eru störf hans á þessu sviði einnig ómetanleg fyrir íslensku þjóðina. Árið 1946 kvæntist hann konu sinni Rálínu Árnadóttur, sem ættuð er úr Vest- mannaeyjum. Þau eru saman enn og með þeim rniklir kærleikar, enda bæði miklum kostum búin. Sjómanandagsblaðið sendir Jónasi Sigurðssyni, konu hans og börnum góðar kveðjur í tilefni afmælisins. SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 19 Þegar Jónas varð sjötugur þann 13. mars s.l. kom fjöldi manns til að færa honum heillaóskir sínar á þessum merkisdegi. Bárust Jónasi margar fagrar gjafir bæði frá vandamönnum svo og fyrrverandi nemendum og samstarfsmönnum í gegn um tiðina. Myndin er af þeim hjónum Jónasi og frú Pálínu Ámadóttur við þetta tækifæri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Sjómannadagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.