Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1981, Blaðsíða 45

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1981, Blaðsíða 45
„í hálfa öld á höíum útf Raití vid Boga Olaísson, skipstjóra Einn kunnasti skipstjóri á farskipum hér á landi er líklega Bogi Ólafsson, eða Bogi á Vatnajökli, eins og vinir hans nefna hann gjarnan, og kenna þá við fyrsta skip Jökla hf., sem Bogi stýrði í áraraðir, ásamt öðrum skipum sama félags. Hann hefur verið til sjós í hálfa öld, það er munstraður á skip og er enn á sjó, með annan fótinn að minnsta kosti. Hann var nýkominn utan úr heimi, þegar við hjá Sjómannadags- blaðinu hittum hann að máli, en þá var hann með flutningaskip- ið Mávinn, en hann er einn af eigendum þess skips, og siglir því oft sjálfur, eða hefur gjört það allt fram á seinustu daga. Mýramaður til sjós — Það er ekki auðvelt að segja hvers vegna maður gerist sjómað- ur, segir Bogi Ólafsson, er við sitj- um í stofu hans í Miðtúni 34 í Reykjavík. — Ég veit það ekki einu sinni sjálfur. — Ég er eiginlega fæddur í hálfgerðum skipakirkjugarði, eða er Mýramaður. Ólst upp í Hjörsey á Mýrum, þar sem foreldrar mínir bjuggu þá, en þau voru Ólafur Sigurðsson bóndi (1870—1937) og kona hans Þórdís Bogadóttir (1884—1972). Mýrarnar voru þá voðalegur staður og þar strönduðu oft skip í hörðum veðrum, en svo sá maður líka hin börkuðu segl bera við bláan himin. Hafið var óendan- lega dularfullt og Hjörsey var einskonar skip líka, því þangað varð ekki farið þurrum fótum. Að vísu mátti vaða til lands á stór- straumsfjöru, ef menn þekktu leiðina, en í smástraumi varð að vaða upp í háls fyrir þá sem voru ekki háir í loftinu. Maður lék sér í fjörunni, en hafið þrumaði eða lék blíðlega við ströndina 30—40 metra framund- an bænum, en annars voru þrjú býli í Hjörsey, þegar ég var bam. Brimið hefur líka lamið þama landið, og landið lamið hafið og er talið að strandlínan hafi breyst mikið, síðan land var numið. Sumar jarðirnar hafa orðið að eyjum, eins og t.d. stórbýlið Knarrarnes, þar sem Skallagrímur kom knerri sínum fyrst að landi og Hjörsey mun einnig hafa verið landföst í eina tíð, en þar ólst upp Oddný Eykyndill, unnusta Bjarn- ar Hítdælakappa. Ekki var mikið sóttur sjór, en tveir bátar voru þó á heimilinu og Bogi Ólafsson, skipstjóri. voru notaðir við hrognkelsaveiði á vorin, en einnig var róið til fiskjar vor og haust, en það var einvörð- ungu til heimabrúks, og svo var farið með ullina í Borgarnes á vorin á bátum og einhverjar vistir voru þá fluttar með áraskipum. — Ég man nú ekki eftir neinum ströndum, eða mannsköðum sjálfur, en víða höfðu farist þarna skip og maður heyrði ýmsar sagnir og þetta kom í hugann þegar salt- ur vindurinn söng í flúðum og skerjum og stórhríðin næddi um hús og jörð. Þó strandaði þarna eitt skip þegar ég var strákur, þýskur tog- ari, Ulrich Schulmager, frá Cux- haven. Þetta var milli jóla og nýárs. Það hafði verið vestanrok með miklum sjógangi, en svo var hann að ganga í norðanátt og -það var byrjað að snjóa, eða var kominn bylur, en þó með dúrum á milli! Það var þá snemma morguns að við heyrðum skipsflaut, sem klauf vetrarmyrkrið og menn brugðu sér út og þá sáust skipsljós úti á víkinni. Skipið virtist fara í kaf, því ljósin hurfu svona öðru hvoru, en síðan strandaði togarinn og bar þarna beinin á hleinunum. — Það vildi nú svo vel til, þrátt fyrir ískyggilegt útlit, að þá bjarg- SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 39
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Sjómannadagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.