Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1981, Blaðsíða 57

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1981, Blaðsíða 57
matarbakkamir að góðum notum og voru þeir notaðir sem skóflur, en fiski kastað yfir eftir því sem til hans náðist. Þeir unnu við kertaljós í lest- inni. Það var alla tíð svo á skút- unum, að unnið var við kertaljós í lestinni en karbítljós á dekkinu og einnig á togurunum, jafnvel eftir þeir voru raflýstir voru notuð kerti í lestinni fram eftir öllu. Jóhann man til dæmis eftir því á Draupni, sem var raflýstur úti í Grimsby, þegar Jóhann var á honum 1922. Haffarinn veltist stjómlaust á hliðinni undan veðri og sjó meðan skipshöfnin hamaðist í lestinni og fljótlega tók skipið að síga aftur á réttan kjöl, því að mannskapnum sóttist fljótt að skófla saltinu og fiskinum yfir í bakborðssíðuna. Þegar þeir höfðu lokið við að rétta skipið, þurftu þeir að geta komizt upp á dekk að vinna við seglin. Þeir höfðu neglt ramlega yfir lúkarsgatið og vildu ekki brjótast þar upp, heldur tóku það ráð að brjóta sér leið í gegnum þilið milli lestar og káetu, og varð þannig gengt upp á dekkið. Þrír menn og einn af þeim Jó- hann skriðu fram með lunning- unni og fram í stafn, klýfirbóman hafði brotnað en hékk á stögum og slóst í skipið. Þeir hjuggu hana frá og tóku fokkuna og tóku tvö rif í hana á einni riflínu og heistu hana síðan og höfðu hana bakk, eins og stormklýfinn áður. Þegar skipshöfnin hafði gengið frá öllu í lest og ofandekks eins tryggilega og kostur var á og fóru undir þiljur að taka til hendi í lúkamum, þá fyrst tóku þeir eftir, að það vantaði einn manninn. Þegar skipið fékk á sig brotsjó- inn, voru sem fyrr segir allir af dekkvaktinni komnir upp nema sá sem stanzaði til að fá sér bita af soðningunni, sem kokkurinn var að færa upp. Hann hitti þannig á, að vera að fara upp úr lúkamum um leið og sjórinn skall yfir skipið og mun manninn hafa tekið út um leið og lúkarskappann. Hinir allir voru komnir aftar á dekkið, en sáu ekki hvað gerðist, því að allir lágu þeir undir áföllum; tvo þeirra tók sjórinn uppí reiða og var það hending ein að þeir menn fóru ekki útbyrðis. Þeir sem voru niðri í lúkamum sáu náttúrlega ekki heldur hver urðu afdrif þessa manns. í hamagangi skipshafnar- innar við að bjarga skipinu gaf sig enginn að því að telja saman mannskapinn, enda ekkert tæki- færi til þess, menn voru að vinna um allt skip við lélega birtu. Soðningarbitinn hafði sem sé orðið þessum manni að aldurtila. Þetta var ungur og ágætur maður, röskur og ekki vanur að vera síð- astur á dekk, en honum lá ekkert á, það komust ekki allir að pump- unni í einu, hvort eð var. Um morguninn lægði veðrið og þeir gátu farið að sigla heim á leið á Haffaranum og tóku þá vara- stórseglsgaffal og notuðu fyrir klýfirbómu og gekk þeim heim- ferðin vel. í þessu veðri fórst skútan Geir með öllum mönnum. í blaða- fregnum á þessum tíma munu þeir hafa verið taldir 27. Það voru mest Hafnfirðingar eða 15 sagðir. Jó- Jóhann Stefansson, skipstjóri. SJÓMANNASAGSBLAÐIÐ 51
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Sjómannadagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.