Sjómannadagsblaðið - 01.06.1981, Page 25
Handíæraveiðar
Sumarið 1959 var m/b Esther
E.A. 8 leigð af Ú.A. Útgerðarfé-
lagi K.E.A. og bæjarsjóði Akur-
eyrar, til handfæraveiða, þ.e. að
sýna og kenna ungum drengjum
hvernig þessi veiðiaðferð er,
blóðga og gera til fisk, hausa,
vaska upp og salta, því fiskurinn
var flattur. Hver drengur hafði
sína rúllu og hinir eldri líka. Við
þurftum að sjálfsögðu að kenna
drengjunum hin ýmsu handtök
við þessar veiðar, svo sem að
blóðga og merkja fiskinn, því hver
af áhöfninni hafði sitt merki. Þeg-
ar landað var, var fiskurinn
sorteraður, eftir merkjum, síðan
viktaður, þá kom hlutur hvers í
ljós. Það þurfti að aðstoða dreng-
ina er verið var á veiðum, því það
vildi verða færaflækja og að ná
inn stórum fiski, blóðga og
merkja.
Það var nú mesta furða hvað
þeir komust fljótt upp á lag með
þett, þó ungir og óharðnaðir væru.
Það átti að skipta um nýsveina á
miðju sumri, sent og varð að
nokkru leyti, einhverjir voru allan
tímann. Það var skráð 10/6. Þessi
mynd er hér fylgir með var tekin
þá um borð í Esther þann dag af
Eðvarð Sigurgeirssyni ljósmynd-
ara á Akureyri. Þar geta menn
fengið myndina og þegar sá tími
kemur, að láta afabörn spreyta sig
á að þekkja þann gamla. Eftir
ntiðjan júlí hætti ég, fór til annarra
starfa, við skipstjórn tók Sigurður
Rósmundsson og hélt út til 20/8,
þar með lauk þessurn þætti. Síðast
þetta. Besta veður var er við fór-
um frá Akureyri, en er komið var
út að Gjögri, þá komin bræla,
snúið við og haldið inn fyrir
Hrísey í álinn þar, þar var fyrsta
kennslustúndin og mannskapur-
inn látinn sjóast.
Finnur Daníelsson
BJÍIi EJL n i 14' r
Skipshöfnin á Esther E.A. 8 1959 frá vinstri aftasta röð: Skarphéð inn Magnússon, Pálmi Þorsteinsson, Þorsteinn Jónsson, Skúli
Friðfinnsson Axel Gíslason, Björn Einarsson, Karl Kristmundsson, Eysteinn Revnisson, Sverrir Pálsson, Gunnar Njálsson, Þór-
arinn Stefánsson, Ágúst Ellertsson, Sigurður Haraldsson, Sveinn Ingi Ólafsson, Harold Henriksen, Adólf Ásgrímsson, Sveinbjörn
Eiríksson, matsveinn, Sigurður Rósmundsson, stýrimaður, Finnur Daníelsson, skipstjóri, Guðmundur Antonsson, vélstjóri og Sig-
mundur Sigmundsson, háseti.
SJÓMANNASAGSBLAÐIÐ 21