Sjómannadagsblaðið - 01.06.1981, Síða 72
Aage Níelsen.
listamanna, sem til greina kom að
leita til með þetta verk, var
ákveðið, að tillögu sr. Sigurðar, að
biðja Aage Níelsen — Edwin um
hugmynd að minnisvarða.
I byrjun okt. 1979 var komin
hingað austur tillaga Aage: Lítil
gifsstytta sem sýndi krjúpandi
sjómann, að biðja til Guðs, með
húfu sína milli handanna. Allir
voru mjög hrifnir af styttunni og
var einróma samþykkt að fela
Aage að gera styttuna, þannig að
sjómaðurinn yrði á stærð við
meðalmann. Hefur gerð minnis-
varðans miðað vel áfram. Fyrst
vann Aage verk sitt í leir en síðan í
gifs. í ágúst 1980 var listaverkið
sent til Noregs þar sem það var
steypt í brons.
Reikna má með að allur kostn-
aður við gerð minnisvarðans og að
koma honum fyrir, muni fara upþ
í 150—200 þús. kr. eða 15—2Ó
millj. g.kr. Leitað hefur verið til
einstaklinga, félaga og fyrirtækja
um fjárstuðning. í lang flestum
tilfellum hafa undirtektir verið
mjög góðar. Þó eru allar líkur fyr-
ir, þegar þetta er skrifað í byrjun
apríl 1981, að Sjómannadagsráð
sitji uppi með einhvem skulda-
hala.
Höfundur myndarinnarAage Níel-
sen — Edwin er fæddur 17. júlí
Kristján Guðmundsson, skrif-
stofumaður sem var form. Sjó-
mannadagsráðs 1980. Á fundinum
var ákveðið að formenn næstu
Sjómannadagsráða skyldu taka
sæti í minnisvarðanefndinni og
hefur Geir Hólm, byggingameist-
ari, verið í nefndinni frá síðasta
sjómannadegi en hann er form.
Sjómannadagsráðs 1981.
Fljótlega eftir þennan fyrsta
fund, höfðum við samband við
séra Sigurð H. Guðmundsson,
sóknarprest í Víðistaðaprestakalli
í Hafnarfirði, og leituðum eftir
aðstoð hans við að komast í sam-
band við listamann sem tekið gæti
að sér að gera minnisvarða um
drukknaða sjómenn. Séra Sigurð-
ur var sóknarprestur hér á árunum
1972—77 og var einstaklega vin-
sæll og farsæll í öllum sínum
störfum. Mér er minnisstæð um-
hyggja hans fyrir öldnum og
unglingum, svo og þeim sem við
áfengisvandamál áttu að stríða.
Séra Sigurður taldi hvorki eftir
tima né fyrirhöfn við að leggja
góðum málum lið. Var svo einnig í
þetta skiptið — hann tók erindi
okkar einstaklega vel. Eftir athug-
anir á störfum og högum ýmissa
Séra Sigurður Þ. Guðmundsson.
66 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ