Sjómannadagsblaðið - 01.06.1981, Blaðsíða 95
Myndin teiknuð af Sigurði Gislasyni, þá nemandi á stýrimannaskólanum 1914.
lók innan úr tíu ýsum
°g tylft af kola við það sat.
Enda bakið ekki beysið
eymsli og tak í hverjum lið.
Inn fékk rakið afturleysið
emjað slak og hífið þið.
Hver var að kalla á Narfa:
A síldveiðum:
Ansið mér í einum svip
engann lygafarva.
Halló bátar, halló skip
hver var að kalla á Narfa.
Var það Óðinn Ægir Týr
einhverþeirra skarfa.
Eg heimta svörin
hrein og skýr.
Hver var að kalla á Narfa.
Egill virðist ófrískur
eymdar kvalir stjarfa.
Hlœrðu að þessu helvískur
hann var að kalla á Narfa
Sértu lasinn Ijúfurinn
lifðu á grasi arfa.
Stillir brasið stúfurinn
stöðugt mas við Narfa.
Æ mér leiðist orðhvískur
ykkar norðan tarfa.
Haltu kjafti helvískur
hœttu að kalla á Narfa.
Guðmundur Ófeigsson hafði
spurt Bjössa, hvort hann væri
hættur að smakka það, eitt sinn
þegar Bjössi kom á skrifstofuna
„bláedrú“. Hann var þá kyndari á
Úranusi.
Ég át í skyndi antabus
að þarf syndum vega
ef skal kynda Úranus
áfram myndarlega.
Þétt var slokað þennan túr
það veit kok og maginn.
Rýk þó fokið flestum úr
fyrir lokadaginn.
Nokkrir skipsfélagar af Neptú-
nusi höfðu farið saman í Iðnó að
skemmta sér. Vísumar lýsa því
hvernig til tókst og síðasta hend-
ingin á við það, að einn mesti
söngvarinn var settur í steininn og
hélt þar áfram söngnum og aldrei
hærra en eftir að honum var
stungið inn.
Það var kátt niðri í Iðnó eitt
kvöldið um daginn
köllin og söngurinn hljómaði um
bœinn
dansinn og drykkjunar sköll.
Þar var Guðmundur saltari og
Svavar að vestan
söngelski Stebbi frá Ólafsdal
hresstann
og Guðmundur togaratroll.
Dável þeir undu við dragspilsins
óma,
þeir dönsuðu bœði við synduga og
fróma
svanna, en synt var um rótt.
Greipar þeir spenntu um Mundu og
Möggu
Maju, Hólmfríði, Þóru og Göggu
en alls ekkert aðhöfðust Ijótt
En gleðin er hverful í dansi og
draumi
döggvaðir slökuðu á velsœmis
taumi
ölteitið orkaði því.
Þá röðullinn sópaði rökkvi af
tindum
reifaði borgina litskrúða myndum
heyrðist einsöngur steininum í.
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 89