Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1924, Page 18

Eimreiðin - 01.04.1924, Page 18
146 EINAR BENEDIKTSSON eimreið|N Fyr en iífið dauðann deyðir dvína skal ei sólarbrá. Mannleg sál skal þekking þrá þar lil sjónin fjarlægð eyðir, uns vors hugar rök og ráð rata allar himna leiðir. Orðlistin, hin forna og síunga íþrótt norræns anda, hefur að vísu hvergi náð jafnglæsilegum þroska í íslenskri skáldment a síðari tímum og í ljóðum Einars Benediktssonar. Mörg kvaeði hans eru svo fullkomnar myndir, líkingar hans af Iitum oS hljóði auk heldur svo snjallar, að sennan rís ljóslifandi fvr*r manni. Augað fagnar með eyranu. Hin fornfagra list, að gefa öllu mynd, líkingu, á hér sín hæstu afrek. Dróttkvæðin ein eiga eitthvað, sem nefna mætti til jafns. Sjálft skáld náttúr- unnar, ]ónas Hallgrímsson, hefur ekki jafngóð tök á að lýsa. Almennast eru náttúrulýsingar t. d. meir eða minna romsu- kendar upptalningar ytri auðkenna í einhverri afstöðuröð „Sér á leiti Lambahlíða og litlu sunnar Hlöðufell". Þetta gefur enga mynd. Það er á sinn hátt eins og marg- ar æfisögur. Alla hina fínu þræði vantar, það sem tengir 1 heild, gefur líf og vekur til lífs. Með Einari Benediktssyni kemst aftur til vegs í bókmentum Islands sú frumregla nor- rænnar skáldmentar að láta aðstæðurnar — verkin, viðburð- ina tala, skýra sjálfa sig sem mest. Hann bregður upp mynd- um, sem lýsa sér sjálfar. A þennan hátt tekst honum að vekja áhrif, sem annars nást alls ekki með einfaldri frásögn eða Iýsingu. Og hann neytir þess oft, byrjar kvæði með mynd- Með því að neyta geðhrifa myndarinnar nær hann oft furðu- legum árangri, þótt um mjög örðug efni sé að ræða. Hér nýt' ur okkar myndauðuga, litríka tunga sinna dýru krafta í fylgd snjalls og máttugs listavits. Fá dæmi nægja lesandanum til glöggvunar. I kvæðinu Hvarf síra Odds frá Miklabæ bregður hann upp fyrir lesandanum helreið prestsins. Eyðiraddir nætur- innar og nöturleg einvera fylla hug hans með nokkru af kvíða og hryllingi hins dauðadæmda, hjálparvana manns, sem flýr

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.