Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1924, Page 22

Eimreiðin - 01.04.1924, Page 22
150 EINAR BENEDIKTSSON EIMREIÐIP* 03 batt saman efnin kvik og dauð. I gullbjarma sá hans glögga hyggja að gifta hins stærra er frelsi hins smærra: að þúsunda líf þarf í eins manns auð eins og aldir þarf gimstein að byggja. Það er gömul reynsla, að ekki þarf síður þrek til þess a? segja sannleika heldur en að finna hann. Það er að vísu gott til skilnings að skoða lífið í kringum sig í ljósi þessarar vængjuðu athugunar — en líklega ekki eins vinsælt. Það er vandi að sjá, hvað taka skal og hverju sleppa. þar sem jafnmikið er fyrir hendi og hér er. Ég hef kosið a? sleppa alveg að kalla þeim kvæðum, er fjalla um sálarlíf og geðhorf einkum, kvæðum, eins og Pundið, Einstæður Stark- aðar, Draumspá ísrafels, Svartiskóli, Álfhamar, Njálsbúð 0. f’- — vegna rúms, og þess líka, að þau krefjast alveg sérstakr- ar meðferðar, sem liggur utan við aðal-áform þessa máls- Með því, sem hér var til fært, vildi ég að eins gefa litla hug- mynd um formlist og orðspeki skáldsins. Um fjölbreytni við- fangsefnanna er hér lítil hugmynd gefin. Svo margvísleg eru þau og stórkostleg —: Listir og hámenning nútíma og lið' inna alda, örlög þjóða og ríkja forn og ný. Reynsla og rök mannssálarinnar á öllum tímum, í öllum aðstæðum. Geimur- inn, jörðin, hafið — lífið í heild og smáum myndum án tak- marka tíma, siða eða þjóða. — Afrek Einars Benediktssonar sem skálds hefur tvöfalda þýðingu fyrir andlega menningu þjóðar vorrar. Hann er fyrsti víkingurinn í nýjum sið. Strandhögg hans og herja-nám í fósturlöndum hámenningar (civilisationar) vors tíma hafa auðg- að skáldment vora að ágætum og sígildum dýrgripum orðsins. Hann hefur í sannleika lagt heiminn undir íslenska orðlist, opnað fyrstur þá leið, sem héðan af er greið skáldmönnum Is- lands út úr einangri og fábreytni, sem lengi hefur heft og lam-

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.