Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1924, Side 33

Eimreiðin - 01.04.1924, Side 33
EIMREIÐIN Það vorar. Eftir Stefán frá Hvítadal. Nú vorar og sólþýðir vindar blása. Ur vetrarins dróma raknar. Nú yngist heimur og endurfæðist, og æskuglaður hann vaknar. Nú brosir röðull við ísþöktum elfum, þær ærast og fjötra slíta; hann langelda kyndir á fannþöktum fjöllum. Hve fagurt er út að líta. Hve sælt reyndist forðum að vakna og vaða, er var ég svolítill drengur. I túninu pollar og tjarnir standa, slíkt tælir mig ekki lengur. Það syngur í eyrum mér seitlandi «iður frá sólbráð úr hlíð og felli. Nú mætti ég gjarnan vaða ef ég vildi, mér væri ekki hótað skelli. Því nú er ég vaxinn að visku manna, og vordagar æfinnar farnir. En dætur mínar, þær Erla og Anna, þær ösla nú polla og tjarnir. Þær finna glaðar til vængjanna veiku og vaxandi hugsjóna þorsins. ...Ur augunum brennur heiðríkju hrifning, þær hlakka svo ákaft til vorsins. Eg lít mig sjálfan í augunum ungu -og æskudraumsýnir þráðar — ll

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.