Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1924, Page 36

Eimreiðin - 01.04.1924, Page 36
164 VINNUHUGVEK]A EIMREIDlN á frjálsræði þeirra til að verja lífi og kröftum til þess sem hugurinn þráir. Hún er skattur, sem þeir verða að gjalda. Mundi þá ekki skynsemin bjóða hverjum manni að haga vinn- unni svo, að hún kostaði sem minstan tíma og erfiði. Því mein tími og erfiði sem sparast við hvert nauðsynjaverkið, því meiri tími og orka verður afgangs til frjálsrar nautnar. Því þéttari sem hripin eru, því færri ferðir þarf að fara til að skila á sinn stað ákveðnum mæli vatns. Þetta er svo augljós sannleikur, að maður hikar við að segja hann. Það þykir einfaldlegt að segja það, sem allir vita og þykjast sammála um. En eitt er að vita hvað rétt er, ann- að að iðka það. Og þar er oft langt á milli. Þótt allir viður- kenni, að hver maður ætti að vinna verk sín svo haganlega sem hann gæti, þá fer því fjarri, að menn leggi alment stund á það. Orsökin er fyrst og fremst vald eftirlíkingarinnar og vanans. Vinnulagið á hverjum stað og tíma er ýmist arfur fra eldri kynslóðum eða uppfinning einstakra samtíðarmanna. Menn sjá fyrir sér verklag þeirra, sem þeir eru með, og taka þa^ upp með misjafnlega nákvæmri eftirlíkingu. Stundum detta menn af tilviljun eða fyrir umhugsun og viðleitni sjálfra sm ofan á nýtt vinnulag, er þeir síðan hafa og verður fyrirmynd fleiri eða færft eftir atvikum. En það vinnulag, sem menn einu sinni hafa upp tekið, loðir að jafnaði lengi við þá, því að þa^ er skrifað í taugakerfi þeirra, er orðið að vana og verður ekki breytt nema með sérstakri áreynslu. Vaninn er eins kon- ar fellingar í eðli manns, er verða því dýpri sem þær fá leng* ur að vera í friði. Er þá augljóst, hve áríðandi það er, að menn venjist á rétta aðferð í upphafi. En raunar verður það aldrei trygt. Enginn getur ábyrgst, að sú aðferðin, sem nu virðist best, sé í raun og veru hin besta, er hafa mætti. Þess vegna verður aðalatriði alira endurbóta að vekja og æfa hugs- un manna og rannsóknaranda, skapa þann vana, sem dýrmaet- astur er, vanann að athuga og íhuga, mæla alt og meta af skynsamlegu viti. Telja enga aðferð og engin tæki góð og gild að órannsökuðu máli. Með því einu móti er von til, a^ menn smámsaman losni úr viðjum ills vana. Það er undar- legt að sjá stundum alfaraveginn eftir sléttum melum eða jöfn- um móum í ótal bugðum. Hvers vegna liggur vegurinn svona •

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.