Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1924, Page 42

Eimreiðin - 01.04.1924, Page 42
170 VINNUHUGVEKJA EIMREIP'N fólgið að skifta um verk. Hvert starf heimtar sitt horf, £*nn ham, ef svo má að orði kveða, og það tekur nokkra stund að komast í réttan ham við verkið. Hins vegar varir hann nokkra stund eftir að verkinu er lokið og tefur því fyrir, a^ maður komist í rétt horf til þess, sem á eftir kemur. Þetta a jafnt við andleg störf og líkamleg og hefur verið sýnt með tilraunum. Skrifið einar 20 tveggja stafa tölur í dálk, hver|3 niður undan annari, eins og til samlagningar, og leggið svo 1 huganum einhverja tölu, t. d. 17, við hverja tölu dálksins fvr,r sig, svo fljótt sem þér getið, og athugið tímann, sem þa^ tekur. Dragið síðan sömu töluna frá hverri tölu fyrir sig, °3 athugið tímann, sem til þess fer. Finnið samanlagðan tímann fyrir hvort tveggja. Að því búnu skuluð þér leggja töluna 0?) við og draga hana jafnskjótt frá hverri tölu í dálkinum athuga tímann, sem það tekur. Þér munuð finna, að seinni að- ferðin er bæði erfiðari og tekur lengri tíma. Þetta getur víða komið til greina. Eigi t. d. að gera hreint í mörgum herbergjum í senn, þá reynist það hagkvæmara að sópa fyrst gólf í þeim öllum, þar næst þurka ryk af og laða til upp um herbergin og loks þvo eða gljá gólíin í þeim öllum, heldur en a8 sópa, þurka af og þvo í hverju herbergi út af fyrir sig, því að auk þess erfiðis^ sem fylgir því að skifta um verk, verður að taka hvert áhald, sópinn, rykþurkuna, þvotta- fötuna o. s. frv. og leggja frá sér jafnoft og herbergin efU mörg, í staðinn fyrir einu sinni með hinni aðferðinni. Þetta er nú að vísu auðsætt, en hefur auk þess verið sýnt með tilraun þar sem athugaður var tíminn, sem verkið tók með hvorri að- ferðinni. Sama á við um diskaþvott. Það er hagkvæmara að hreinsa fyrst matarleifarnar af öllum diskunum og hlaða þeim, þar næst þvo þá alla, þá þurka þá alla og loks ganga fra þeim þar sem þeir eru geymdir, en að ljúka hverjum fYr,r sig, enda mun það að jafnaði gert. Eins og það er mikils vert að spara sér óþarfar hreyfinSar’ eins er hitt, að hver nauðsynleg hreyfing verði svo hagkvæm sem verða má. Við hverja hreyfingu kemur margt til greina- Eitt er hraðinn. Snöggar hreyfingar taka auðvitað hver fyrir si9 minni tíma, og í hraðanum býr orka, eins og hver maður veit. sem kastað hefur steini eða rekið nagla. En snöggar hreyf'

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.