Eimreiðin - 01.10.1927, Side 15
EIMREIÐIN
Kórvillan.
Eftir J. P. Pérés.
Fyrir hérumbil 20 árum rakst ég á þessa ritgerð í enskri þýðingu í
tímaritinu Open Court. Þótti mér hún svo hnittin og skemtileg, að ég
snaraði henni á íslenzku að gamni mínu. Síðan hefur hún legið hjá mér,
án þess að ég hafi gert tilraun til þess að koma henni á prent. En
nokkrir kunningjar mínir, sem séð hafa hana hjá mér, hafa haft mjög
gaman af henni, og er ekki ólíklegt að svo kynni að vera um ýmsa fleiri.
Og þar sem á þessu ári eru liðin 100 ár síðan ritgerð þessi kom fyrst
út, þá virðist ekki illa til fallið, að hún birtist einmitt nú á íslenzku.
Ritgerð þessi kom fyrst út á frönsku árið 1827 og nefndist Grand
Erratum. Höfundur hennar Jean Baptiste Pérés (f. 1752, d. 1840) var
kennari í stærðfræði og bókavörður í Agen, lítilli borg á Suður-Frakk-
landi. Meðal kunningja hans fór orð af því, hve íhaldssamur hann væri
bæði í stjórnmálum og trúmálum. Sem rithöfundur er hann einungis kunnur
af þessari litlu ritgerð, en hún hefur líka komið út hvað eftir annað og
verið þýdd á flest lungumál Norðurálfunnar.
Tilefnið til ritgerðarinnar var einkum bók um uppruna trúarbragðanna
eftir Dupuis (1742—1809), mjög lærðan mann, þar sem hann hélt því
fram, að öll trúarbrögð mætti útskýra sem goðsagnir, er ættu rót sfna að
rekja til sólarinnar, og sama máli væri að gegna um sögu Jesú frá Naz-
aret. Til þess að sýna, hver fjarstæða þetta sé, tekst Pérés á hendur að
sanna, að Napoleon Bonaparte hafi aldrei verið til, heldur eigi frásagn-
'rnar um hann einungis við sólina. Með léttri og fjörugri fyndni gerir
hann þannig napurt háð að grunnfærum vísindarökum, framsettum með
lærdómssniði, sem eiga að sanna miklu meira en mögulegt er að sanna.
Dr. Paul Carus ritstjóri tímaritsins Open Court kallar ritgerðina „one
of the best satires ever written in the literature of the world“ (eitthvert
hesta háðrit, sem til er í heimsbókmentunum).
Porst. Porsteinsson.
Napoleon Bonaparte, sem svo mikið hefur verið rætt og
ritað um, hefur aldrei nokkurn tíma verið til. Hann er ekkert
annað en ímynduð vera, persónugerfi sólarinnar. Vér getum
sannað þessa staðhæfingu vora með því að sýna, hvernig all-
ar frásögurnar um Napoleon mikla eiga rót sína að rekja til
hins mikla ljósgjafa. Látum oss nú lítið eitt athuga, hvað oss
hefur verið sagt um þenna merkilega mann.