Eimreiðin - 01.10.1927, Blaðsíða 85
EIMREIÐIN
Náttúran.
(Goethe).
Náltúra! Hún umlykur og umfaðmar okkur — við getum
ekki komist út ,úr henni, og við getum ekki komist dýpra
niður í hana. Obeðið og fyrirvaralaust tekur hún okkur í
hringdans sinn og knýr okkur áfram með sér, unz við þreyt-
umst og hnígum úr hendi hennar.
Hún skapar endalaust nýjar myndir; það sem er, var aldrei
áður, það sem var, kemur ekki aftur; alt er nýtt og þó ávalt
hið sama.
Við lifum mitt í henni og erum henni ókunnugir. Hún talar
við okkur í sífellu, en laetur ekki uppi við okkur leyndardóm
sinn. Við orkum í sífellu á hana, og höfum samt ekkert vald
yfir henni.
Hún virðist hafa haft allan hugann á einstaklingseðlinu, og
henni verður ekkert úr einstaklingunum. Hún byggir í sífellu
og eyðir í sífellu, og að vinnustöð hennar verður ekki komist.
Hún lifir í eintómum börnum; en móðirin, hvar er hún?
Hún er völundurinn mikli; úr einfaldasta efni vinnur hún
stærstu andstæður, hinni mestu fullkomnun nær hún án þess
að virðast hafa nokkuð fyrir, hinni nákvæmustu ákvörðun nær
hún, ávalt hjúpuð einhverjum mjúkleika. Sérhvert verk hennar
hefur sitt eðli, hvert fyrirbrigði hennar er algerlega sérstætt,
og þó er alt eitt.
Hún leikur sjónleik. Hvort hún sér hann sjálf, viium við ekki,
og^þó leikur hún hann fyrir okkur, sem stöndum úti í horni.
I henni er eilíft líf, verðandi og hreyfing, og þó miðar
henni ekki áfram. Hún ummyndast að eilífu, og ekkert augna-
blik er kyrstaða í henni. Stöðugleika þekkir hún ekki, og
bölvun sína hefur hún lagt við kyrstöðuna. Hún er ákveðin;
skref hennar eru föst, undantekningar hennar sjaldgæfar, lög
hennar óbreytanleg.
Hugsað hefur hún og íhugar í sífellu, en ekki eins og
maður, heldur eins og náttúra. Hún geymir sér sinn ákveðna
allsherjarskilning, sem enginn getur ráðið í.
Mennirnir eru allir í henni, og hún í öllum. Henni ferst
vingjarnlega við alla, og hún gleðst, því meira sem menn
vinna af henni. Við marga leikur hún svo á huldu, að hún
leikur til enda áður en þeir taka eftir því.
Einnig hið ónáttúrlegasta er náttúra, einnig hinn aumasti