Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1927, Síða 49

Eimreiðin - 01.10.1927, Síða 49
EIMREIÐIN SKRIFTAMÁL Á NÝÁRSNÓTT 353 Hún flýtti sér til mín, lagði hendurnar um háls mér og fól tárvott andlitið við brjóst mitt. Það titraði í mér hver taug, aldrei hafði nokkur kona staðið svo nálægt mér áður. En ég náði valdi yfir sjálfum mér og reyndi að hugga hana og tala um fyrir henni — hún hafði svo mikla þörf fyrir hughreist- ingu. — Þú komst inn rétt á eftir. Þú tókst ekki eftir geðs- hræringu þeirri, sem ég var í. — Þú varst annars hugar; kinnar þínar brunnu og augu þín voru höfug af vímu ástar- innar. — En eftir þetta gamlárskvöld var orðin breyting á mér, sem ég var hræddur við. Um leið og mjúku handlegg- irnir hennar vöfðust að hálsi mér, um leið og ég dró að mér ilminn úr hári hennar, hrapaði stjarnan mín bjarta af himnum ofan, og frammi fyrir mér stóð konan, fögur og heillandi. Eg kallaði sjálfan mig bæði þorpara og svikara, og til þess að friða samvizku mína að einhverju leyti tók ég að mér að stía ástkonu þinni frá þér. Til allrar lukku átti ég þá dálítið af peningum. Hún gerði sig ánægða með þá upphæð, sem ég bauð henni, og —« »Hvert í heitasta!« hrópaði gamli hermaðurinn upp yfir sig, þrumulostinn. »Svo þú áttir þá sök á því, að Bianca yfirgaf mig og skrifaði mér þetta átakanlega kveðjubréf, þar sem hún skýrði mér frá, að hún yrði að hafna ást minni, þó að hjarta sitt ætlaði að springa af harmi?« »Já, ég átti sök á því«, sagði vinur hans, »en ég á eftir að segja þér fleira. Eg hafði haldið, að ég gæti keypt mér frið með þessum peningum, en sá friður kom ekki. Með vaxandi ofsa leituðu hugsanirnar á mig. Eg vann baki brotnu til þess að reyna að gleyma. Það var einmitt þá, sem ég samdi fyrstu drögin að bók minni »OdauðIeiki hugsjónanna*, en ekkert hjálpaði. Eg var friðlaus maður. Þannig leið heilt ár, og aftur rann upp gamlársdagur. Aftur sat ég hjá henni á þessum stað. Þú varst heima það kvöldið, en lást sofandi á legubekk í hliðarherberginu. Þú varst þreyttur eftir fjörugt miðdegisverð- arsamsæti í klúbbnum. Þegar ég nú sat svona nálægt henni og horfði á hið föla andlit hennar, kom endurminningin yfir mig með ósigrandi afli. Eg varð að finna höfuð hennar hvíla við brjóst mér einu sinni aftur, ég varð að þrýsta kossi á varir hennar aðeins einu sinni — og svo mátti alt forganga fyrir
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.