Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1927, Page 81

Eimreiðin - 01.10.1927, Page 81
EIMREIÐIN ÞJÓÐNÝTING Á ENGLANDI 385 yfir innlendum matvælum, útvegun þeirra, skiftingu eða verði, og að mestu leyti náðu umráðin til þessa alls. Að þessu ráði var vikið af mikilli tregðu, og stundum ekki fyr en vörurnar voru komnar í óhæfilegt verð manna á milli. En höf. heldur því fram, að alt hafi þetta í raun og veru gengið prýðilega — eftir að það var gert. Þá tók og stjórnin að sér yfirráð yfir járnbrautunum. Það gerði hún þegar í ófriðarbyrjun samkvæmt heimildarlögum frá 1871. Ekki var þar samt um neina eiginlega þjóðnýting að tefla. ]árnbrautafélögin áttu járnbrautirnar, og framkvæmdar- nefndin, sem starfaði undir yfirráðum stjórnarinnar, var skipuð forstjórum járnbrautafélaganna. Stjórnin ábyrgðist félögunum sama ágóða sem þau höfðu haft 1913, en mátti nota braut- irnar eftir vild til hernaðarflutninga á mönnum og vörum. Við samvinnuna milli járnbrautafélaganna innbyrðis og stjórnar- innar á hina hliðina kom það í ljós, að óþörf og gagnslaus eyðsla hafði verið afar mikil undir hinni sundurgreindu stjórn járnbrautafélaganna, og nú tókst með lítilli fyrirhöfn að færa mikið í lag. Höf. segir, að með þessu fyrirkomulagi hafi stjórn járnbrautanna tekist merkilega vel. Þá voru kolin. I fyrstu sá stjórnin ekkert fyrir yfirráðum ríkisvaldsins yfir kolanámunum. En nauðsynin á slíkri ráð- stöfun varð auðsæ, þegar fram í ófriðinn kom. Hún byrjaði í dez. 1916 með stjórnaryfirráðum yfir kolanámunum í Suður- Wales. En í marz 1917 náðu þau yfirráð yfir alt landið. Fulltrúi stjórnarinnar (»the Coal Controller*) fékk vald til að ákveða verðið, takmarka ágóða, ráða yfir útflutningi, skamta kol til heimilisnotkunar, iðnaðar og framleiðslu á gasi og raf- magni, ákveða aðferðir við skiftingu kolanna, hafa afskifti af kjörum verkamanna og fyrirskipa um framleiðsluna. Þetta var alt örðugt og vandasamt verk. Árið 1913 hafði kolaframleiðslan numið 287 miljónum smálesta, en 1916 var hún komin niður í 256 miljónir, vegna þess að verkamenn vantaði og áhöld. 1917 komst hún niður í 248 miljónir, og 1918 í 228 miljónir. Kola-umsjónarmennirnir urðu því að ráða fram úr þeim örðugleika, að birgðirnar fóru stöðugt 25 1
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.