Eimreiðin - 01.04.1952, Page 10
82
ENGIÐ GRÆNA
EIMllEIÐIN
litlir ókunnir fœtur síöar hlupu um þig.
Löngu er oröi'ö aö dufti og gleymt og grafiö
grasiÖ, sem foröum bylgjaöist syngjandi’ um mig.
Þegar mér hverfur heimsins dásemd um siöir,
lielzt mundi’ eg kjósa, sumarengiö mitt grœna,
eilífa hvíld undir smáravellinum vœna,
veröandi eitt meö þér, eftir stundartöf.
Laufvindar heitir, hugulsamir og bliöir,
haustblööum mundu feykja um mína gröf.
Guðmundur Frímann.
★
Hver er þín dægradvöl?
Flestir eiga einhver sérstök áhugamál, sem þeir leggja rækt
við í tómstundum, þegar frí gefst frá daglegum störfum. Sumir
tefla skák eða spila á spil, yrkja sér til hugarhægðar eða afla sér
þekkingar í tungumálum. Aðrir leggja rækt við einhverja iðn,
bókband, smíðar o. s. frv., í tómstundum sínum. Sumir lesa bæk-
ur, aðrir sækja kvikmyndir, danzsamkomur eða leikhús. Og svona
mætti lengi telja.
Fróðlegt gæti verið að vita, hvaða dægradvöl á mestum vin-
sældum að fagna hér á landi, hve margvíslegar dægradvalir eru
stundaðar og hvers vegna. En um þetta munu engar hagskýrslur
vera til, enda aldrei til þeirra safnað. Til þess því að fá um þessi
atriði nokkrar heimildir, beinir Eimreiðin eftirfarandi spurningu
til lesenda sinna: Hver er þín dægradvöl, og hvers vegna tekur þú
hana fram yfir allar aðrar? Spumingin er tvíþætt. Seinna atriðið,
hvers vegna svarandi taki sína dægradvöl fram yfir allar aðrar,
getur orðið honum til sjálfsprófunar um það, hvort hann hafi
valið rétt eða hvort ekki væri ástæða til að breyta um og taka
upp aðra nýja. Svörin þurfa að vera stutt, helzt ekki lengri en
ein Eimreiðarsíða. Áskilinn er réttur til að birta svörin, en þau
má birta undir dulnefni, ef óskað er. Svörin sendist til Eimreiðar-
innar, pósthólf 322, Reykjavík.