Eimreiðin - 01.04.1952, Side 13
eimreiðin
VIÐ ÞJÓÐVEGINN
85
öðrum álíka smekklegum nöfnum. Það þarf að breyta stjórnar-
skránni til bóta, bæði í því atriði, sem hér hefur verið rætt, og
fleirum. Og það á ekki að takast að nota forsetaskiptin til þess
að stinga þeim umbótum svefnþorn. Forsetavaldið verður ekki
flokkspólitískt, sé rétt að farið, ef þessar umbætur á stjórnar-
skránni komast á. Það verður það lífakkeri, sem nú vantar svo
tilfinnanlega í ölduróti flokkabaráttunnar í þessu landi.
★
gÍÐASTLIÐINN vetur hafa orðið nokkrar sennur í ræðu og riti
um svonefnd atómljóð og önnur. Orðið atómljóð er, eins og
atómöld, nýtilkomið og merking þess nokkuð á reiki. Sumir kalla
það atómljóð, sem áður voru nefnd Ijóð í óbundnu máli. Aðrir
eiga við með orðinu óræða Ijóðagerð, í áþekkum
Vald blekk- stíl og Æra-Tobba, þar sem hrönglað er saman
ingarinnar. setningum, venjulega án meiningar og oft einnig
án ríms og síðan ætlazt til, að fólk taki þessa
framleiðslu fyrir góða og gilda Ijóðsmíð. Bæði fyrirbrigðin hafa
verið kunn áður um langt skeið, enda er ekkert nýtt undir sólinni,
ef vel er að gáð.
Mörg vor mætustu skáld hafa einhverntíma á ævinni borið við
að semja Ijóð í óbundnu máli. En þau hafa ekki festst í minni
fólksins eins og hendingarnar. Þau lærir enginn né man til lengd-
ar- Jafnvel önnur eins listsmíð eins og „Sorg“ Jóhanns Sigurjóns-
sonar læsir sig ekki í vitund lesandans eins og hið rímaða Ijóð.
Ég hygg þá ekki marga, sem kunna það Ijóð í óbundnu máli
utan að.
Það ber allmikið á því með vorri kynslóð, að menn ofmettist af
allskonar lærdómi, sem í þá er troðið, enda hefur hún meiri ráð
á bókum, blöðum, æðri og lægri skólum, leikhúsum, kirkjum,
kennurum og allskonar heimspekistefnum en nokkur kynslóð á
íslandi hefur haft áður. En engin kynslóð hefur legið undir öðrum
eins áróðri og vor. Engin kynslóð hefur átt eins á hættu að tor-
tíma sjálfri sér með sinni eigin menntun og þekkingu sem vor.
Menntun atómaldarinnar er ekki menntun hjartans, heldur mennt-
un eyðingar og blekkingar. Engin kynslóð er í annarri eins hættu
°g vor fyrir því að beygja sig undir ok harðstjórnar, sem mundi
9era að engu þau verðmæti og það frelsi, sem óteljandi milljónir
manna á undan oss hafa barizt fyrir og fórnað lífi sínu og blóði.
Helmingur mannkynsins hyggur sig vera að berjast fyrir frelsi,