Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1952, Qupperneq 16

Eimreiðin - 01.04.1952, Qupperneq 16
88 VIÐ ÞJÓÐVEGINN EIMREIÐIN það jafnvel háskólaprófessora, vera að vitna til þýzka rational- ismans frá því um síðustu aldamót sem „frjálslyndrar guðfræði" og reyna að nota hann sem vönd á þá menn, sem ekki geta orðið þeim samferða um skilning á lögmálum lífsins. Hin svonefnda hærri krítik á heimildir Ritningarinnar, sem þeir Adolf Harnack, Theodor Zahn, Jóhannes Weisz, Hermann Gunkel og fleiri þýzkir guðfræðingar stóðu að um aldamótin síðustu, var að sjálfsögðu ekki annað en tímabundin viðleitni til hiutlausrar sögurannsókn- ar, undir áhrifum þeirrar efnishyggju, sem þá ríkti við háskóla Norðurálfunnar og ekki sízt í Þýzkalandi. Tilraunir lærðra manna til að afsanna kraftaverk þau, sem skýrt er frá í Heilagri ritn- ingu, náðu um þetta leyti hámarki sínu. Þá er það, að sálarrann- sóknir nútímans varpa nýrri birtu, nýjum skilningi, á þessi mál, svo að öll rök efnishyggjunnar verða að engu. Og það er ekki sízt þessum rannsóknum að þakka og því, hvernig þær voru túlkaðar hér heima, og þá fyrst og fremst við hinn unga háskóla vorn, að fjöldi menntamanna hinnar uppvaxandi kynslóðar í landinu á fyrstu áratugum þessarar aldar stóð ekki uppi trúlaus og ger- samlega ráðþrota gagnvart leyndardómum lífsins. Ég veit, að séra Ulsdal er nokkur vorkunn, því hann þekkir sýnilega ekki annað til sálrænna rannsókna en þann gagnrýnilausa, sérkirkjulega spíritisma, sem honum hefur orðið angur að í Danmörku. Hér á íslandi hafa sálarrannsóknirnar aldrei orðið að sektaríanisma. í landi voru er ekki til einn einasti spíritistiskur söfnuður. Har- aldur prófessor IMíelsson sagðist aldrei mundi segja sig úr þjóð- kirkjunni, því hann leit svo á, að kirkjan ætti að njóta árangurs- ins af sálarrannsóknunum og þyrfti þess með í vantrúarflóði ald- arinnar. Hann sagði, að það yrði þá að reka sig úr kirkjunni. Það var aldrei gert. Ef til vill hefði það verið gert í danskri þjóð- kirkju — og vafalaust ef menn á borð við séra Ulsdal hefðu fengið að ráða. Ulsdal klerkur kvartar yfir því, hve kirkjurnar á íslandi séu litlar, lélegar og óvistlegar. Aftur á móti úir og grúir af nýtízku íbúðarhúsum, glæsilegum bifreiðum, og jafnvel flugvélar eru á íslandi miklu hversdagslegri farartæki en í nokkru öðru landi Evrópu. Svo er helzt að skilja af lýsingu klerks, að íslendingar séu svo önnum kafnir við að þjóna Mammoni og eigin hagsmun- um, að þeir hafi engan tíma til að þjóna guði, svo sem með þv' að gera sér vegleg guðshús. Þeim dettur ekki einu sinni í hug að endurbæta einstaka gamla kirkjumuni, sem maður rekst stund- um á. Gömlu kirkjumunirnir munu nú reyndar liggja ennþá flestir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.