Eimreiðin - 01.04.1952, Side 51
eimreiðin
STRAUMAR ISLANDS
123
Að þessi hér nefndu fiskimörk úr tilskipun 15. ágúst 1763 eru
aðeins fiskihelgi, en segja ekkert um yfirráðasvæði Islands eða
konungs þess yfir sjónum, sést máske bezt á því, að hafa það í
huga, að straumar Islands og Noregs tóku þá til samans yfir allt
norðanvert Atlantshafið, og hafði konungur fram til þess tíma
beitt þeim yfirráðarétti sínum óspart. Og þótt Noregur gæfi upp
yfirráðarétt sinn yfir straumunum fyrir austan mitt haf og færði
yfirráðasvæði sitt niður í eina milu fram með ströndum Noregs
1812, þá var fjærri þvi, að ísland gerði slíkt hið sama. Það hélt
sínu yfirráðasvæði á hafinu óbreyttu fyrir vestan hina fornu
miðhafslínu við Noreg. Og enn hefur ekkert það gerzt, er svipt
hafi ísland þessum yfirráðarétti yfir hafinu. Og Islandi ber að
halda dauðahaldi í hann. — En eins og öllum er kunnugt, getur
yfirráðaréttur staðið algerlega einstakur út af fyrir sig sem
nudum jus, alveg án starfrækrar stjómar eða framkvæmda.
Að fiskihelgi-ákvæðin í tilskipun 15. ágúst 1763 séu aðeins
fiskimörk, og að þau segja ekkert um strauma Islands eða yfir-
ráðasvæði þess eða konungs Islands á hafinu, sést hezt á því,
að þau eru endurtekning á tilskipunum konungs frá 17. öld,
°g að konungur Islands og Noregs réð þá yfir öllu norður-
hafinu og beitti þá þessum yfirráðarétti sínum yfir hafinu með
roeiri harðdrægni en nokkru sinni fyrr eða síðar. Og engum
royndi þá (á 17. öld) hafa til hugar komið, að yfirráðasvæði
konungs vors á hafinu hefði verið takmarkað við það belti, þar
sem hann áskildi þegnum sínum einum veiði og bannaði hana
öllum öðrum.
Yfirráðasvæði lands vors á hafinu var 1871, og er enn, allt
annað og víðtækara hugtak en landhelgin. Það yfirráðasvæði er
margfalt eldra en heitið landhelgi og eldra en þjóðarétturinn
sjálfur og því ekki von, að nafnið landhelgi sé haft um það í
fornum heimildum. Yfirráðasvæði fslands á hafinu hét og heitir
enn straumar fslands. Og þótt það nafn á yfirráðasvæðinu virðist
ekki hafa verið komið á gang hér á landi á þjóðveldistímanum,
þá var þó sjálft yfirráðasvæðið orðið þá til. Og árið 1871 voru
ekki aðeins til í íslenzkum lögum ákveðin takmörk landhelginnar,
fiskihelginnar, heldur og yfirráðasvæðis íslands á hafinu, straum-
anna. Þau ákvæði voru þá og eru enn til í Grágás og fornum