Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1952, Page 70

Eimreiðin - 01.04.1952, Page 70
Máttur mannsandans eftir dr. Alexander Cannon. [Við lestur V. kafla bókar dr. Cannons eru lesendur beðnir að hafa í huga, að í þessum kafla beinir höfundurinn einkum máli sinu til stéttar- bræðra sinna, læknanna, enda birtist kaflinn upphaflega í læknatímariti. — Dr. Cannon hefur lagt á það áherzlu í bókum sínum um déleiðslu, að hana ættu helzt ekki aðrir að iðka en læknar eða læknisfróðir menn, með ábyrgðar- tilfinningu og þroskaða siðgæðismeðvitund. Hann telur, að dáleiðsla geti verið hættuleg, þegar óhlutvandir menn og ekki starfi sinu vaxnir hafi hana um hönd, enda þótt það sé fágæt undantekning, að dávaldar geti dáleitt menn gegn vilja þeirra. ÞýS.] Sjúklingar leita lækna til þess að verða heilbrigðir! Gott og vel, gleymið þá ekki að umvefja þá hugsanahjúpi heilbrigði, bjartsýni og sjálfstrausts. Þrýstið mynd þessara kennda inn a hugi þeirra og gerið það með svo hnitmiðaðri nákvæmni, að áhrifunum ekki skeiki. Sjúklingarnir koma oft til ykkar af því þá skortir öryggi og trú á sjálfa sig. Blásið þeim í brjóst bata, sem þeir þarfnast, og verið beinskeytir. Notið nútíðina, eins og batinn sé þegar byrj- aður. Og gleymið ekki, þegar einum áfanga er náð, að kenna þeim að beina huganum sífellt hærra og hærra. Þvi meðvitund- inni hættir til að hrapa aftur niður í athafnaleysi, þó að henni sé beint að einhverju marki, ef linað er á hvatningunni, og verður því jafnan að setja henni nýtt og hærra mark en áður, án þess að nokkurntíma sé staðar numið. Meðvitundin ályktar eitthvað á þessa leið: Ég hef verið rekin til að gera þetta, en nú hef ég náð markinu og get því tekið mér hvíld. En þá verðui að kenna henni á þessa leið: Fyrir þig er ekki um neina hvíld að ræða, því ég hef þegar látið þig byrja á að keppa að enn hærra marki. Það er mikilvægt fyrir sjúklinginn, að sá áhugi hans, sem vakinn er, haldist áfram óslitið og aukist. Eftir þv| sem áhuginn eykst, eftir því verður batinn skjótari, unz að þvl

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.