Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1952, Page 75

Eimreiðin - 01.04.1952, Page 75
ElMREIÐIN MÁTTUR MANNSANDANS 147 löniunarsjúkdóm er að ræða. Það er hægt að magna hverja taugahræringu hins dáleidda, svo að hann verði miklu næmari fyrir áhrifum en í vöku. Hann getur fundið hvað daufa lykt sem er, þó að hann hafi rétt áður ekki fundið nokkra lykt af sterku ammoníaki, sem borið var að vitum hans. Og að hoði dá- valdsins getur hann breytzt í einni svipan úr máttlausri hrúgu í vöðvastæltan kraftajötun, sem getur unnið ofurmannleg afreks- verk. Samskonar breytingar getur dávaldurinn kallað fram í til- finningalífi dáleidds manns, breytt honum úr voluðum aum- ingja í lífsglaðan og áræðinn ofurhuga. Mótsetningamar í til- finningalifi hans verða margfalt sterkari en i vöku. Því í vök- nnni kemur sjálfsstjórnin til sögunnar og tekur í taumana, sé °f langt gengið, en hjá dáleiddum manni er ekki um neina sjálfs- stjórn að ræða. Hann er algerlega á valdi þeirrar ástriðu eða tilfinningar, sem dávaldurinn blæs honum í brjóst. Ég hef veitt því eftirtekt, að maður, sem hefur verið daleiddur 1 lokuðu herbergi, sem er einangrað þannig, að stuttbylgjur raf- ^nagns komast ekki út úr því, getur ekki „ferðast í anda og séð °f heima alla“ utan veggja þess herbergis, eins og hann getur í hverju öðm herbergi, þar sem hann er staddur. Þetta virðist henda til þess, að dáleiðsla grundvallist á bylgjuhreyfingum eitt- hvað í aott við svokallaðar stuttbylgjur. Sá maður, karl eða kona, sem hefur mestan vitsmunaþroska, hefur,'ef rétt er að farið, mestan mátt til að heilla aðra og til að láta heillast. Þetta þýðir, með öðmm orðum, að því meiri vits- ^unaþroska sem maðurinn hefur náð, þeim mun auðveldara Veitist honum að dáleiða aðra og láta dáleiðast. íhugið þessi mikil- Vægu sannindi með sjálfum yður og lærið af þeim. (Framh.) = § = ÖorS«8 meS brosi. Allir töluðu um skattakúgunina. Einn samkvæmisgestanna sagði: „Verið e i að ergja ykkur út af sköttunum. Borgið þá bara með brosi! nHvort ég vildi ekki!“ hrópaði ein úr hópnum, „en þvi miður krefst skatt- e*mtumaðurinn peninga.“ Point de Vue, París.

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.