Eimreiðin - 01.04.1952, Side 81
Ritsjá
Ólafur Björnsson, prófessor: HAG-
FRÆÐI, Rvk 1951 (HlaSbuö).
SiðastliðiS haust kom út á vegum
bókaútgáfunnar Hlaðbúð í Reykjavik
kennslubók í hagfræði eftir Ölaf
Björnsson, prófessor við Háskóla Is-
lands. Þetta er allmikið rit, 173 blað-
siður þéttprentaðar í Eimreiðarbroti.
Bókin var upphaflega samin til notk-
unar við kennslu í hagfræði í Verzl-
unarskóla Islands og fjölrituð handa
nemendum þar. Þótt hókin komi nú
ut á prenti með ýmsum breytingum
°g viðaukum, er henni þó eftir sem
'iður ætlað að vera kennslubók i þess-
um fræðum fyrir verzlunarskóla og
byrjunarnámskeið stúdenta. En höf-
undur ætlast jafnframt til þess, að
bókin geti einnig orðið leiðarvísir
beim mönnum, sem áhuga hafa á
þjóðfélagsmálum og kynnast vilja
grundvallaratriðum hagfræðivísind-
anna.
Og hvernig hefur svo höfundi tek-
lzt þetta? Þegar á allt er litið verður
ekki annað sagt en að hann hafi í
ullum aðalatriðum nóð settu marki.
1 ekki stærra riti hefur honum tekizt
þjappa saman furðulega miklu
eíni um flesta helztu þæti efnahags-
starfseminnar.
Bókinni er skipt niður í 11 kaf la, og
er þar fyrst gerð grein fyrir viðfangs-
efnum hagfræðivísindanna, skipu-
lagningu framleiðslunnar, verðmynd-
Uni peningamálum og lónstofnunum,
millirikjaverzlun, verðlagi og hag-
sveiflum, þjóðartekjum og að lokum
rætt nokkuð um helztu stefnur, sem
nú eru uppi í efnahagsmálum.
Af yfirliti þessu má róða, að hér
hlýtur viða að vera stiklað á stóru,
þar sem heita má, að hver einstakur
kafli fjalli um sjólfstæða fræðigrein.
En höfundi hefur tekizt að draga
saman ó skýran og ljósan hátt grein-
argott yfirlit um hverja þeirra. Var
honum þó óneitanlega mikill vandi á
höndum, þar sem um svo viðtækt
efni er að ræða. Mó raunar segja, að
þar með sé þrautin leyst, því að við
samningu bókar sem þessarar, skiptir
það mesu móli að kunna að greina á
milli þeirra atriða, sem almennt gildi
hafa og hinna, sem heyra sérþekk-
ingunni til. Þetta virðist mér höf-
undi hafa tekizt, og kom honum þar
vafalaust að gagni löng reynsla við
kennslustörf, enda hefur hann nú um
árabil verið kennari við Háskóla Is-
lands og aðrar helztu menntastofn-
anir landsins.
Um málfar bókarinnar er allt gott
að segja. Það er látlaust og lipurt og
her þess vott, að höfundur hefur efn-
ið vel á valdi sinu. Hann er fundvis
á íslenzk heiti á hinum ýmsu hug-
tökum hagfræðinnar, og mér finnst
honum yfirleitt hafa tekizt vel, þeg-
ar hann þarf að mynda ný. Eiga
mörg þeirra sjalfsagt eftir að festa
rætur í islenzku hagfræðimáli. Þó