Eimreiðin - 01.04.1952, Blaðsíða 86
158
RITSJÁ
EIMREIÐIN
LANDSBANKI ISLANDS 1950.
Rvik 1952.
Frá aðalbanka þjóðarinnar hefur
um langt skeið komið út ársrit, }>ar
sem ekki er aðeins fjallað um störf
bankans, reikningar hans birtir o. s.
frv., heldur er að finna ótal upplýs-
ingar um efnahagslíf þjóðarinnar, at-
vinnuvegi hennar, fjárhag, verðlag,
verzlun, samgöngur o. fl. Ársrit bank-
ans fyrir 1950 hefur orðið siðbúið
nokkuð, }>ví það er fyrir skömmu
komið út og hefur verið sent Eim-
reiðinni nýlega.
Sem dæmi um þann fróðleik, sem
hér er að finna, má nefna, að á ár-
inu 1950 veitti Félagsmálaráðuneytið
210 ný atvinnuleyfi til útlendinga,
en þar af voru 74 karlar og 136 kon-
ur. Flest atvinnuleyfin, eða 88, fengu
Danir, þá Þjóðverjar 83, Svíar 12 og
Norðmenn 10. Árið áður höfðu þó
enn fleiri atvinnuleyfi verið veitt út-
lendingum, þvi þá fengu 141 Dani,
95 Þjóðverjar, 12 Sviar og 54 Norð-
menn hér þetta leyfi. Fjölmennastar
árið 1950 voru starfsstúlkur á heimil-
um og sjúkrahúsum, alls 101, þá iðn-
aðarmenn og -konur 48 og hjúkrun-
arkonur 20. Gjaldeyrisleyfi fyrir
vinnulaunum erlendra manna á Is-
landi voru veitt á árinu að upphæð
1,4 millj. kr. og jafnhá upphæð árið
þar áður. Þess má geta, að á sama
tíma og þetta fór fram, var atvinnu-
leysi með meira móti víðast hvar á
landinu.
Annað dæmi má nefna, að á árinu
1950 nam innflutningur tilbúins
áburðar 13.668 tonnum, en heildar-
verð hans var 10,57 millj. kr. Árið
áður hafði innflutningur þessarar
vöru numið 14.360 tonnum, að verð-
mæti 7,47 millj. kr. Á árinu 1950 var
byrjað að vinna að undirbúningi að
byggingu áburðarverksmiðju og lof-
orð fengið fyrir Marshallfé til henn-
ar. En í febrúar 1951 var stofnað
hlutafélag, til að reka verksmiðjuna,
með 10 millj. kr. hlutafé, en af því
leggur ríkissjóður til 6 millj. kr. Eins
og kunnugt er hefur bygging þessar-
ar verksmiðju nú á þessu ári verið
hafin í Gufunesi, og er gert ráð
fyrir að henni verði lokið á næsta
ári.
Þriðja dæmið er um ferðalög til
útlanda og hingað: Á árinu 1950
voru farþegar til útlanda 9542 (árið
áður 11606), en til landsins komu
8698 ferðamenn (árið áður 11688).
Um tekjur af útlendum ferðamönn-
uin er ekki getið, enda líklega litlar
eða engar.
Hér er ekki rúm til að telja upp
fleira úr þessari árbók Landsbanka
Islands. Þess má aðeins geta, að hún
er stórfróðlegt heimildarrit um fjöl-
mörg atriði varðandi hag lands og
þjóðar.
Sv. S.
20TH CENTURY SCANDINAV-
IAN POETRY.
Svo heitir bók, sem út kom 1950,
en hefur nýlega verið send Eimreið-
inni. Það er félagið ,,The Scandinav-
ian Book Club“ í New York, sem
hefur séð um prentun þessa safns is-
lenzkra, danskra, norskra, sænskra og
finnskra kvæða, frá árunum 1900
1950, í enskri þýðingu. Islandi er
helgaður fyrsti hluti bókarinnar, og
hefur dr. Stefán Einarsson, prófessor
í Baltimore, séð um val þýðinga is-
lenzku kvæðanna og ritað stuttan for-
mála að þeim. Um valið ú sjálfum
þýðingunum hefur orðið að miða við
þann litla forða og misjafna að gæð-
um, sem til er í enskum þýðingum-