Eimreiðin - 01.01.1975, Blaðsíða 64
ÉIMREIÐlN
Hún minnir á Ópið eftir Edvard Munch.
Tólf ára sonur okkar fór i bíó
til að sjá James Bond
í þjónustu hennar liátignar.
Dóttir okkar 6 ára kom heim úr skólanum klukkan þrjú.
Hún lærir að lesa Gagn og gaman
með myndum Tryggva Magnússonar,
sami texti, sömu myndir
og forðum:
Tóta situr á tunnu.
Tóta tunna, Tóta tunna!
Tóta tunna, sagði Tumi.
Ég er ekki tunna, segir Tóta,
en ég sit á tunnu,
og þú ert hjá mér, Tumi minn.
Við sækjum liina dótturina, sem er þriggja ára, í leikskólann
klukkan fimm.
Stolt heldur hún á teikningu,
sem líkist fóstri,
sem ekki fær að lifa
á þessum siðuðu tímum.
Þegar sjónvarpsfréttirnar frá Víetnam og Kambódiu hefjast
klukkan átta
verður sú yngri sofnuð með brúðuna, sem hún fékk á Ítalíu
í sumar, við lilið sér.
Sú eldri bíður eftir Ugla sat á kvisti.
Hún steypir sér kollhnis á gólfinu
meðan striðið geisar á skerminum.
Við snúum okkur undan!
Það er kominn tími til að fá sér kaffibolla
og dást að mynd garðsins þegar rökkvar,
siðustu sólargeislunum, sem falla á borðið, bækurnar
og málverkin
eins og á safni.