Iðunn - 01.12.1887, Side 27

Iðunn - 01.12.1887, Side 27
Tveir vinir. 441 gert; það var eins og hann væri orðinn ástfanginn í skuldum vinar síns. En þetta gékk svo seint og dræmt, og Charlés var orðinn fölr og bleikr af að bíða og bíða. Hann beið og beið eftir því augnabliki, að augu allra þessara manna, sem alt af liöfðu lítils metið. liann, skyldu opnast svo, að þeir sæju, hve lítils. virði í verunni þessi Alphonse væri, sem allir gum- uðu svo mikið með. Hann vildi lægja metnað Al- phonse’s og vita hann yfirgefinn af öllum vinuin sín- um, einmana og allslausan, og þá-------- Ja, lengra var honum ekki um að halda liugs- uninni áfram. því að þegar þangað var komið, lireyfðu sór í brjósti hans nokkrar tilfinningar, sem hann vildi ekki kannast við. Hann vildi hata fornvin sinn ; liann vildi fá liefud fyrir allan þann kulda og vanmet, sem hann hafði orðið fyrir í lífinu ; og hvert sinn sem einhver ofr- lítil hugsun gægðist upp í ssíl hans til að taka svari Alphonse’s, þá ýtti hann henni frá sér og sagði eins og gamli bankarinn : »það tjáir ekki fyrir mann í verzlunarstétt að vera viðkvæmr». Einn dag sem oftar gékk hann til skraddara síns;. liann lót ef til vill um þessar mundir sauma sér öllu fleiri föt heldr en hann þurfti nauðsynlega á að halda. Skraddarinn litli var inn kvikasti og kom undir eins með stóran stranga af fataefni: »Sko ! þetta er efni fyrir yðr í föt. Monsieur Alphonse er einmitt að láta búa sér til alklæðnað úr því; og monsieur Alphonse er maðr, sem hefir vit á að velja sér efni, sem vel fer, í föt».

x

Iðunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn
https://timarit.is/publication/441

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.