Iðunn - 01.12.1887, Blaðsíða 54
468 André Theuriet: Presturinn í Flóttúlfsdal.
hamingjn er biskupinn hygginn maður og gætinn.
»Já, góðir hálsar#, sagði hann við þá, sem voru
að rægja mig; »úr því Davíð konungur hefir, eins og
biflían sýnir, dansað frainmi fyrir sáttmálsörkinni,
þá get jeg varla sjeð neitt á móti því, að prestur-
inn í Flóttúlfsdal leiki á hljóðpípu frammi fyrir hinu
heilaga skríni; væri rjettara, að vjer segðum við
hann, eins og Nathan spámaður sagði við Davíð
konung : Far þú og gjör það, sem hjarta þitt býður
þjer, því hönd hins alvitra leiðir þig».
(a. g.).
Kölski og málaflutnings-
maðurinn.
Dðnsk þjóðsaga.
•YJC inu sinni í fyrndinni var málaflutningsmaður;
jGíf og’hann átti ekki heima lijerna í bænum.
Hann var vanalega fjarskalega vel búinn, og gild
úrfesti úr gulli dinglaði allt af framan á maganum
á honum ; hann gekk við langan staf með silfur-
húni, og hafði gullhring á hverjum fingri. Ofurlítinn
skúf hafði liann aptan í hnakkanum, eins og gamli
móðurinn var, og skúfurinn dinglaði fram og aptur,
eins og dindill, þegar hann var á gangi. Var á
gangi! já, hann var sannarlega á rólinu. Hann