Ægir - 01.03.1918, Qupperneq 8
44
Æ G I R
að eiga, og gæti það haft nóg að slarfa
alt árið, ef fyrirtækinu væri vel stjórnað
og ekkert hvingl eða fálm út loftið kæm-
ist að. Hjá þjóð, sem ekki sjTnir meiri
viðurkenningu en við gerum þegar björg-
un á sjó fer tram, má varla vænta góðra
undirtekta hér, en nú ætla eg að vera
svo djarfur að kalla það ófyrirgefanlegt
hugsunarleysi, að geta hvergi um þegar
formenn á bátum leggja lif sitt ogskips-
liafnar sinnar í ofsaveðii i sölurnar til
þess að bjarga mörgum mönnum og
tekst það. Það kom fyrir i mikla veðrinu
24. marz 1910, að einum sem þá hjálp-
aði var gleymt, ekkert á liann minst og
það sem tekur út yfir alt er það, að
þeim sem bjargað er ogskylduliði þeirra
skuli ekki láta sér detta í hug að þakka
opinberlega í blöðum, og sýna velgerða-
manni sinum i það minsta þá viður-
kenningu, minna mátti það ekki vera.
í*að mun íljótt komast á hér að knýja
á Carnegisjóðinn, það er nýlt, en það
mun nú fara svo samt, að þeir sem
verðugastir eru koma þar ekki til greina,
vanta talsmenn. Innan skamms reyni eg
að birta í Ægi björgunina, sem gleymdist
að geta um og þakka. Sem stendur er ekki
um gufuskip að ræða — að hafa ofan í sig
silur nú i fyrirrúmi hjá fleslum, og dauf-
legt fram á tirnann að líta, en hugsað
getum við enn og vonað að úr hörm-
ungunum rakni. Gufuskip virðist ókleyft
að kaupa, þvi það verður að vera gott.
— Mótorbátar eru gallagripir, sem geta
svikið, þegar mest ríður á, en Colin
Archers skipin (norsku björgunarsköjt-
urnar) hafa i liöndum þeirra manna,
sem með kunna að fara, getið sér orð-
stýr, sem flogið hefir um allan heim.
Það eru að eins seglskútur, en þœr gclci
siglt og þeim stýra þeir menn, sem
kunna með segl og áhöld að fara, og
þeir mundu ekki vilja taka seglin niður
og nota mótor, þegar á lægi. Segl á skip-
um eru nú hér að verða dauðadæmd og
geng eg þvi að þvi sem gefnu, að hug- ,
myndin um það fái ekki miklar undir-
tektir, að landið eignaðist eilt slíkt skip,
sendi tvo duglega formenn til Noregs,
sem kyntu sér aðferð björgunarmanna,
með því að fá skiprúm á sliku skipi
nokkurn tíma og kyntust skipinu sjálfu.
Kæmi slikt skip að notum hér, gæti svo
farið að annað væri keypt, þá hefðum
við skipstjóra á þau bæði, og þeir kendu
svo skipshöfnum sínum, þvi hér þýðir
ekkert kák, menn verða að kunna.
Skipin sjálf munu ekki mjög dýr, og
úthaldið að meðaltali i Noregi i fvrra
varð um 7—8000 kr.
Kvenfólk þessa lands berst fyrir ýmsu
góðu, það er með sinn 19. júni og fleiri
góða daga, sem koma mörgum til að
hugsa vel og rétt. — Foringjar þeirra
munu fæstar vera tengdar sjómönnum,
en konur, dætur og systur sjómanna
þessa lands eru margar. Gætu þær ekki
einnig haft sinn dag, svo sem 12. marz
eða 7. april, eða þá annan merkisdag i
lifi sjómanna. í tómstundum sinum gætu
þær unnið einhverja handavinnu, sem
þann dag væri sett á Basar. Þekti eg
rétt mundi sama sniðið komast á hér og
annarsstaðar, að þeir hlutir mundu borg-
aðir langt fram yfir verð. l3að snið er
þegar komið á við Samverjann; menn
kaupa t. d. 1 bolla af kafli, borga hann
með 5—10 kr. Það sýnir góðan vilja að
styrkja fyrirtækið. — Afþessugæti mynd-
ast sjóður, og með timanum gæti svo
farið, að menn gæfu minningargjafir i
þann sjóð, eins og nú er gefið til lands-
spitalans. Hér er um enga samkepni að
ræða. Sjóðir þessir yrðu svo nátengdir
að þvi undanskildu, að spitalasjóðui'inn
verður til að hjálpa þeim lil lífsins, sem
sjúkir og hrumir eru. — Bjargráðasjóð-