Ægir - 01.03.1918, Qupperneq 23
ÆGIR
59
sem tiltækilegast og mest þörf væri á að
kyggia fiskihaínir.
Eg fyrir milt leyti, er ekki i neinum
vafa um, að einn með fyrstu stöðum
sem á að rannsaka og byggja á góða fiski-
höfn, er einhversstaðar á áður nefndu
svæði (Austurhorn — Hornafjörður) sem
yrði þá aðallega fiskihöfn fyrir Ausfirð-
inga, svo þeir geti notað vetrarvertíðina,
sem þeir eru algerlega útilokaðir frá eins
og nú stendur á.' Það er alveg óbærilegt
að allur mótorbátaflotinn hér eystra, eða
niest allur, skuli standa á landi aðgerða-
laus 7 mánuði af árinu, og þar með
niörg hundruð manna atvinnulausir ein-
nntt á þeim tíma, sem ódýrast og bezt
er ná i fiskinn, ef góðar hafnir væru lil,
sem næst þeim stöðum sem flskurgeng-
ur á, á vetrin og vorin. Hvað mikið
mætti auka framleiðsluna á fiski með
hafnarbyggingu hér eystra er ekki gott
að segja með vissu, en álit mitt er það,
að sjálfsagt mætti tvöfalda framleiðsluna,
að minsta kosti, og ef nú er framleiddur
fiskur hér á Austfjörðum fyrir 2 miljónir
þá er hér ekki um neitt smáræði að
ræða. Það er svo, að landssjóður yrði
ekki lengi að fá endurgoldinn byggingar-
kostnað hafnarinnar, beinlínis með aukn-
um tekjum af aukinni framleiðslu, og
svo yrði óbeinn hagnaður landsbúa ekki
svo litill.
Með þetta fyrir augum, vona eg að
allir sjái, að þörfin á höfn hér eystra, er
afai’brýn, og vonandi að landsstjórnin
hafi opin augun fyrir þessu, og komi
þessu máli sem fyrst i framkvæmd.
Þá er að velja staðinn. Eg hefi haldið
því fram, að liöfnin sé hverji betur sett
en einhvei'sstaðar við Lónsvikina, því
engin efl er á því, að það er fiskisælasti
staðurinn með suð-austurströnd landsins
siðari part vetrar og alt franr í mailok,
og þá vei’ð eg eins og aðrir að halda
fram Hvalneskrók sem heppilegustum
stað fyrir fiskihöfn, Þar er hreinast úli
fyrir og aðdýpst. Þar er ágætt aðstöðu á
landi, og fyrir ofan ki'ókinn er stórt lón
eða fjörður, svo kallaður Lónsfjörðui',
sem er aðskilinn frá króknum með kring-
um 150 rnetra breiðum, malar- og sand-
kambi, og þar mundi að líkindum vera
hægt að gei-a höfn með því að grafa í
sundur fjörukambinn, og gera bátgengan
skurð úr króknum og inn í lónið.
Hvalnesskrókur er ekki stór. Tanginn
að austan sem myndar krókinn er um
280 til 300 metra langur, og þeim megin
eru klappir og aðdjúpt svo að leggja má
stórum mótorbátum alveg að klöppun-
um, fyi'ir botni og að vestan er fjara,
sandur og smámöl, og myndar dálítil
eyri krókinn að vestan; við fjöruna er
mjög aðdjúpt. Við tangaoddan er 12
metra dýpi, en alveg inn í botni á ki'ókn-
um er 7—8 metra dýpi. Fjöruborðið er
4—6 fet. Á landi er gott byggingarpláss,
og bryggjur þurfa mjög stuttar þar sem
svona er aðdjúpt.
Sunnan og suðvestan eru þær einu
áttir sem standa beint inn á krókinn.
fyi'ir öðrum áttam er þar skjól.
Þessa lýsingu hefi eg eftir manni sem
býr þarna nálægt, og rær til fiskjar úr
króknum á vetrin.
Þessi höfn sem byggja þyrfti, ef að
fullu gagni ætti að koma fyrir Austfirð-
inga, yrði að vera það stór, að þar gætu
að minsta kosti haldið til 60—80 stærri
og minni mótorbátar á vertíðinni og
einnig þyrftu stærri skip að geta ferrnt
og affermt þar líka.
Eg vona að Fiskifélagið leggi kapp á
að hrinda þessu máli áfrarn, sem alli'a
fyrst, og það geri sitt til að hlutast til
um við landsstjói'nina, að hún láti hafn-
vei'kfræðing sinn rannsaka nefnt hafna-
arstæði á næsta sumri, og gera áætlun