Ægir - 01.04.1922, Side 23
ÆGIR
57
Frá Englandi.
EutrlendingHr ætla að hefta innflutning
á flski frá þeini löndurn, sem styrkja
velðar mcð fjárframlagi.
í dansk Fiskeritidende, 4. apríl þetta
ár, segir svo:
Tilkynt frá London. Sjávarútvegsnefnd
neðri málstofu enska þingsins, hefir
ákvarðað að mæla með, að þau lög
verði selt, sem banni innflutning á fiski
frá þeim löndum, sem veita fiskimönn-
um styrk af ríkisfé.
Saratal við skipstjóra Jeusen
irá Grenaa
I tilefni af þessari tilkynningu fór rit-
stjórn dansk F.t. á fund fulltrúa fiski-
manna í danska þinginu, skipstjóra M.
C. Jensen frá Grenaa, og spurðu hann,
hvernig hann liti á þetta mál.
»Þetta er svo þýðingarmikið mál«,
sagði hann, »að verði þetta lagafrumvarp
samþykt og því framfylgt, þá er það algjört
hrun dönsku fiskiveiðanna, þar eð Eng-
land sem stendur, er hið eina land, sem
hefir markað fyrir fisk okkar«.
»Að hverju leyti styrkir danska ríkið
fiskimenn sína?«
»Styrkur sá er ekki mikill«, svarar
Jensen. »Það er lítil upphæð, sem veitt
er til skrifstofuhalds og þess háttar, en
frumvarpið enska á heldur ekki við það,
en svo er mál með vexti, að rikið ætlar
að styrkja að einhverju leyti í þrjá
mánuði, frá 15. apríl að telja, fiskflutn-
ingaskip, sem sigla á milli Esbjerg og
Englands. Það er samskonar styrkur
sem veitlur hefir verið búnaðinum til
útflulnings á Jandafurðum og það er
Englendingum móti skapi«.
»Hver ráð á nú að hafa?« spyr rit-
stjórnin.
Jensen svarar: »Eg sé ekki annan veg
en að ráðuneytið danska byrji þegar
samninga við Englendinga, með því
móti einu, gæti úr einhverju raknað«.
Það er auðskilið á þessu, að enska
nefndin er á bandi fiskimanna sinna og
vill vinna gegn því, að framandi menn,
sem styrktir eru af því opinbera og geta
því fremur selt fisk sinn lægra verði en
ella, geti gjörst keppinautar innfæddra
manna á þeirra eiginn markaði.
Varðskipið Islands Falk
yflrmaðnr Chr. Broberg.
Frá 8. október til 9. april, hefir varð-
skipið Islands Falk tekið fasta 20 togara,
og hafa þeir fengið sektir sem hér segir:
Islenzkir 2, sektir 12,000 kr.
Enskir 6, sektir 60,000 kr.
Franskir 2, sektir 12,000 kr.
Þýzkir 10, sektir 77,000 kr. — Alls 20,
sektir 161,000 kr.
Af sjö togurum hafa verið tekin veið-
arfæri og afli, og bætist andvirði þess
við sektirnar.
Samhliða strandgæslunni hefir Islands
Falk farið tvær ferðir til Grímseyjar frá
Akureyri og Húsavík, og flutt þangað
póst og farþega, og höfðu þá engar sam-
göngur verið við Grímsey í 3 mánuði.
Ennfremur hefir skipið flutt um 100
farþega með ströndum fram, flutt lyfja-
vörur o. þ. h., og ennfremur 60 tunnur
af steinolíu og 25 smálestir af kolum til
Vestmannaeyja, þegar skortur var á
þessum vörum þar. Ennfremur hefir það
veitt skipum i nauð hjálp.