Ægir - 01.04.1922, Síða 26
60
ÆGIR
var sinnum mönnum af skipsreika i
vondu veðri og aldrei hlektist honum
á í allri hans löngu formensku og miklu
sjósókn. Yið landvinnu var hann dugn-
aðar og eljumaður hinn mesti. Þegar
kaupfélag ísfirðinga á sínum tima tók
upp þá nýtízku að veíta verðlaun fyrir
góða verkun á saltfiski hlaut Gísli hæstu
verðlaun fyrir vandaða og góða vöru.
Fyrir dugnað og eljusemi fékk hann
fyrstur manna styrk úr styrktarsjóði
gamalla formanna við ísafjarðardjúp, er
kaupfélag ísfirðinga stofnaði af sjóðleif-
um sínum, er það hætti.
Kona Gísla var Solveig Þorleifsdóttir
frá Unaðsdal, hin mesta sæmdar- og
gæðakona. Þau hjónin dvöldu á ýmsum
stöðum við Djúpið, en lengst i Ögurnesi.
Það er í þjóðbraut og varð heimili þeirra
góðfrægt fyrir gestrisni og góðgerðasemi.
Af börnum þeirra komust tveir synir til
fullorðinsára og eru enn á lífi, Árni yfir-
fiskimatsmaður á ísafirði og Þorsteinn
bóndi á Borg í Skutufirði. Konu sína
misti Gisli fyrir nokkrum árum, dvaldi
hann eftir það hjá Árna syni sínum það
sem eftir var æfinnar. Síðustu æfiár sín
var hann þrotinn að heilsu og kröftum.
Með honum er horfinn einn af hinum
gömlu og góðu ísfirzku formönnum, er
voru sjómannastétt vorri til vegs og virð-
ingar. S. St.
V ertíðin.
Vertíð sú, sem nú er á enda, hefir ver-
ið ein hin bezta sem menn muna. Hjálp-
ast hefir þar alt að, bæði gæftir og mikill
fiskur. Veiöar hafa þó verið misjafnar og
sumar veiðistöðvar hér sunnanlands orð-
ið útundan, t. d. Garður, Leira og Hafnir.
Sömufeiðis hafa botnvörpuskipin vart með-
alvertíð. Afli þeirra var framan af mjög
blandaður upsa og kringum lokin var fisk-
ur tregur og ýsuborinn.
Uppgripaafli hefir verið í Vestmanna-
eyjum, Austanfjalls, Grindavík, Sandgerði,
Keflavík og víðar á innanverðum Faxa-
flóa. Aflaskýrslur hafa verið strjálar og
frá sumum stöðum hér sunnanlands hefir
enn ekki tekist að fá skýrslur, en von á
þeim.
Skýrslur þær, er skrifstofunni hafa bor-
ist eru þessar:
Frá Hermanni Þorsteinssyni erindreka,
13. apríl, símskeyti svohljóðandi: Fiskiafli
Austurlands saltaður frá áramótum til V*
2753 skpd. reiknað þurt, aðallega máls-
fiskur. Frá Kristjáni Jónssyni erindreka,
25. apríl, símskeyti svohljóðandi: »Hér
sem næst þurfiski, stórfiskur 3900 skpd.,
smáfiskur 1700, ýsa 900, labrador 500,
langa 150 skpd.
í bréfi frá erindreka Páli Halldórssyni,
dags. n/i segir svo:
»Með langmesta móti er þiiskipaútgerð
héðan af Eyjafirði í ár, nærfelt öll skip
sem á flot fara verða sett til þorskveiða eöa
21 skip (auk Talismans) og líklega 3 af
Siglufirði. Pessi skip eru flest lögð út og
hin í aðsigi með það. Um vélbáta og róðr-
arbátaútgerð ekki hægt að segja enn þá
með vissu, en miklar líkur til að hinir
fyrri verði svipaðir og síðasta sumar og
sá seinni talsvert meiri. Yfir höfuð bendir
alt til þess, að menn kappkosti að fram-
leiða sem mest, sem betur fer. Ráðningar-
kjör á vélbátum munu enn ekki fastákveð-
in, en á skipunum V2 dráttur og borga ’/2
salt og V2 olíu. Hákarlaveiði hafa fáeinir
vélbátar stundað af Siglufirði og gengið
vel, en efasamt að nokkur skip gangi til
þeirrar veiði að þessu sinni, að minsta
kosti ekki fleiri en 2 ef nokkur verði. Há-
karlslifur keypt á 22 kr. tunnan. Síldarafli
óvanalega mikill á Akureyri til skamms