Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.04.1922, Qupperneq 34

Ægir - 01.04.1922, Qupperneq 34
68 ÆGIR Vitar 09 sjónerki. Til leiðbeiningar við útsiglinguna frá ísafjarðarhöfn á Skutulsflrði hafa verið sett upp 4 ljós þau er hér segir: Við innri Naustabæ tvö Ijós er bera saman í stefnu 89°, neðra ljósið 25 m. frá sjó, hæð 6 m. yfir sjávarmál, efra ljósið 70 m. ofar, 10,5 m. yfir sjávarmái, bæði föst, hvit. Ljósin eru í ljóskerum á á 4,5 m. háum staurum. Á Kaldareyri tvö ljós er bera saman í stefnu 57°, neðra Ijósið 8 m. frá sjó, hæð 6 m. yfir sjávarmál, efra ljósið 56 m. ofar, 8 m. yfir sjávarmál, bæði föst, hvít. Ljósin eru í ljóskerum á 4,5 m. háum staurum. Logtími 1. september til 31. marz. Skip, sem fara út frá Pollinum, haldi saman Naustabæjaljósunum, þangað til Kaldareyrarljósin koma saman. Því næst er farið eftir þeirri stefnu þangað til Naustavitarnir gömlu bera samán og er þá farið út sundið eftir þeim. Reykjavik, 26. apríl 1922. Vitamálastjórinn. Th. Krabbe. „Sterling". Hinn 1. maí strandaði hið góða gamla skip »SterIing« við Brimnes á Seyðisfirði. Var skipið á leið inn Seyðisfjörð, er svarta þoka skall á. Var það harður straumur, sem bar skipið út af réttri leið. Mann- björg varð og gekk greiðlega þar eð veð- ur var gott, en lítið bjargaðist af vörum. »Geir«, björgunarskip, fór þegar er fregn- in barst hingað að austan, til þess að reyna að bjarga skipinu, en það reynd- ist ókleyft. Skipshöfnin kom hingað með »Gull- foss« 19. maí og sjópróf var haldið í Reykjavík hin 22. s. m. Bátðtapi. Hinn 18. april fórst bátur í fiskiróðri úr Hafnarfirði, ^með 3 mönnum. Ofsaveðnr. Laugardagskveld 13. mai skall hér á voðaveður af norðri með bil. í því veðri er talið víst að mótorbátur »Hvessingur« frá Hnífsdal hafi farist með 9 mönnum, og enn vantar mb. »Sam- son« og mb. »Aldan« frá Eyjafirði, og eru menn hræddir um að þeir bátar hafi farist. Eru þá druknanir orðnar um 70 þessa vertíðina. Sklpstrand. Ms. »Svalan«, eign Sam- bandsins o. fl. rak á land hinn 24. mars að kveldi og brotnaði mjög. Skipið lá í vetrarlegu á Rauðarárvík við Reykjavík en sleit festar í norðanroki þvi, er geys- aði þann dag. »Geir« náði skipinu út og var það tekið upp á dráttarbrautinni hér í Reykjavík hinn 10. maí og mun véra hið þyngsta skip, sem hér hefir enn ver- ið sett á land. — »Svalan« er skonnort- skip fjórmastrað og er 397 br. rúmlestír, 135 feta löng og 28,9 feta breið. Síldveiðl með reknetum stunda tvö skip í Jökuldjúpi, »Haraldur« og »Skjald- breið«. Pau hafa aflað dável, þegar litið er á illar gæftir. Skipsstrand.Norskt eimsk.,Agnes,strand- aði 16. maí nál. Kúðaósi. Mannbjörg varð. Skipið finst hvergi og ekkert spyrst til þess. Ritstjóri Sveinbjörn Egrilson. Prentsmiöjan Gutenberg.

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.