Ægir - 01.02.1931, Blaðsíða 5
ÆGIR
27
gengi vel út. Búist var við að fyrirfram-
greiðslan myndi lækka síðar ofan i 12
og jafnvel 10 sh. Til þess að finna heild-
söluverð ísl. labrans, miðað við cif.verðið,
verður með þessu gengi, að bæta við
cif.verðið 28 pesetum á pk. (hér i reikn-
uð 2°/o léttun). 20 sh. cif.verð á islenzk-
um labra samsvarar því 70 peseta heild-
söluverði á honum, þegar álagningin er
ekki reiknuð meiri en 4°/o, sem innflytj-
endum þykir 2—3 pesetum of lág þegar
um föst kaup er að ræða og nóg hægl
að fá í umboðssölu af þeim egta.
Meiri en 5 sh. munur má því ekki
vera á cif.verðinu á ísl. labranum og
fyrirframgreiðslunni á þeim egta, ef sá
isl. á ekki alveg að verða undir í sam-
keppninni, ef mikið er til af hvorum
íveggju.
Þveginn og pressaður islenzkur fiskur
er tekinn fram yfir egta labra, ef verðið
er hið sama á báðum. Má sá ísl. vera
allt að 2 pesetum dýrari en sá egta. í
Sevilla og Malaga töldu sumir innflytj-
endur hægara að koma út ísl. þvegna
°g pressaða fiskinum heldur en islenzka
labranum, ef undirvigtin vœri ekki meiri
ú þeim þvegna og pressaða heldur en á
„ iabranum. Einn stærsti innflytjandinn á
þessum tveim stöðum, tók svo djúpt í
árina, að hann áleit að hægt væri að
selja í Sevilla og Malaga 30000 pk., i
Alicante 10000 pk. og i Valenciu 10000
pk.. eða samtals 50000 pk. af ísl. þvegn-
um og pressuðum fiski á tímabilinu febr.
~~apríl, ef verðinu á honum væri ekki
haldið hærra en á egta labranum og
undirvigtin ekki meiri en á ísl. labra og
stærð, fiskatala í pakka og flatning væri
höfð eins og þessum stöðum hæfði bezt.
^kal ég nú vikja að þessu siðasta atriði.
í Sevilla og Malaga vilja menn ein-
göngu stóran fisk, sem þykkastan og
hvítastan. Fullverkaði fiskurinn má ekki
vera smærri en 28—32 fiskar í pakka og
væri bezt að altaf væri eitthvað með af
20—24 og helzt líka 15—18 í pk. Verk-.
aði stórfiskurinn, sem þangað kemur á
sumrin verður að vera fullverkaður, en
á vetrum má nokkuð af honum vera
7/« og jafnvel 8A verkaður. Töiuvert verð-
ur þó altaf að vera fullverkað.
Góð stærð á labra og pressufiski fyrir
báða þessa staði er 18—22 þml. ogverð-
ur hvorltveggja að vera alflalt. Helzt
mega ekkí vera yfir 50 fiskar i pakka og
væri á gætt að í sama farmi kæmi meg-
inið af þessari stærð og tölu, en nokkuð
með maxímura 40 i pakka og 30 í pk.
og gæti verðmunurinn á hverri stærð
verið 9 pence til 1 sh. á pakka. Eins og
kunnugt er, er oft sendur til Madrid
stærsti fiskurinn, sem til Sevilla kemur
og mun þangað mega senda hann jafn-
vel að eins þveginn og pressaðan, himnu-
dreginn jafnt sem óhimnudreginn.
Mest af labranum (og pressufiskinum)
til Aticante á að vera stór (18—22 þml.)
og alflattur, þó nokkuð geti líka farið
þangað af smáum (14—18 þml.) og útúr-
flöttum.
Valencia vill ca. helming af hvoru,
stórum, alflöttum og smáum, útúrflöttum.
Enginn þessara staða vill handlabra,
þó þeir séu oft neyddir til þess að taka
hann með og helzt vilja þeir ekkí smærri
fisk en 14 þml.
Þetta á allt að vera hægt að fram-
kvæma. Ítalía borgar vel fyrir handlabr-
ann og eins þann smærri (12—14 þml.),
sem sézt bezt á því að hún borgar hand-
labrann venjulega sarna verði og labra
nr. 2 og stundum svolítið meir.
Eins og kunnugt er vill Italíumarkað-
urinn mestmegnis útúrflattan labra (og
pressufisk) upp að 18 þml. Sumir staðir
vilja þó stærri labra, alflattan. Er þvi ó-
hætt að útúrfletja allan þann fisk upp