Ægir - 01.02.1931, Síða 6
28
ÆGIR
að 18 þml., sem menn ætla að selja
pressaðan, eða labraverkaðan og alíletja
þann yfir 18 þml. Allur labri (eða pressu-
fiskur) yfir 23 þml. verður að pakkast
sér, hvort heldur að hann er sendur til
Spánar eða Ítalíu.
Á öllum stöðum, bæði á Spání og í-
talíu, þykir það mikill ókostur ef salt
sézt utan á fiskinum. Séu mikil brögð
að þvi, selur það fiskinn víðast hvar í
nr. 2, þó að öðru leyti sé hann óaðfinn-
anlegur. Þess þarf sérstaklega að gæta
við húsþurkaða fiskinn. Húsþurkaður
labri þárf að vera svolítið meir þurkað-'
ur en sá venjulegi sólþurkaði.
Til Suður-Spánar, sérstaklega til Se-
villa og Malaga, mun mega selja talsvert
(10—15000 pk.) af labraverkaðri ýsu H
—18 þml. og alflaitri., á timabilinu apríl
—september, en 3—4 sh. verður hún að
vera ódýrari á pk. en ísl. labraþorsk-
urinn.
Eg er ekki í neinum efa um það, að
við getum aukið mjög söluna til Suður-
Spánar á labra og einkanlega á pressu-
fiski, ef farið er að, eins og ég hef skýrt
hér frá. í sumar og í fyrra voru gerðar
tilraunir í Sevilla og Malaga með smá-
sendingar af ísl. pressufiski. Má segja að
þær hafi enn þá mistekist af því, að undir-
vigtin hefur reynzt alltof mikil (8—10°/«)
og ennfremur var mikið af fiskinum út-
úrflatt. Stærsti innflyljandinn á þessum
stöðum (Trueba y Pardo) hefur þó enn
svo mikla trú á innflutningi pressufiskj-
ar til þessara staða, að hann telur að
hægt muni vera að selja á þessum stöð-
um, þegar á næsta ári (1931) á tímabil-
inu frá febrúar—aprilloka, allt að 30000
pökkum, ef þess sé gætt, sem ég hefi
sagt hér að framan. Þó ég telji hér full-
mikið i lagt. þegar tillit er tekið til þess,
að pressufiskur okkar er sem stendur
ekki vel kynntur á þessum síöðum, þá
tel ég þó sjálfsagt að nota einmitt tæki-
færið nú, þegar ofmikið er til af þessari
vöru handa þeim markaðsstöðum, þar
sem hún er vel kynt, til þess að koma
henni inn á þeim stöðum nýjum, þar
sem mjög sennilegt er að hægt sé að út-
vega henni markað. í þessu sambandi
vil ég geta þess, að á Suður-Spáni ætti
okkar pressufiskur fyrst og fremst að
geta útrýmt franska »bankfisldnum«.
Bezta ráðið til þess, að undirvigtun á
pressufiskinum verði ekki meiri en óskað
er, tel ég það, að hafa yfirvigt á hverj-
um pakka, hafa t. d. 53 kg. i hverjum
pakka, sem seldur er sem 50 kilóa.
Fiskirannsóknir Fiskifélagsins.
Agrip af stefnuskrá rannsóknanna
á næstu árum.
Eins og forseti Fiskifélags íslands, hr.
Krisján Bergsson. gat um í 9. tbl. Ægis
1930, (Framtíðarfyrirkomulag fiskimál-
anna og Fiskifélagið), hefur félagið ráðið
höfund þessarar greinar i þjónustu sína
til fiskirannsókna. Fiskifélagið hefur nú
tekið fiskirannsóknir, eða allar þær hlið-
ar sjórannsóknanna, sem beinlinis snerta
fiskiveiðarnar, i fsína hönd. Fiskirann-
sóknir, og sjórannsóknir almennt, hafa
að vísu verið gerðar hér við land í stór-
um stil, einkum á siðustu árum, og munu
forvígishöldar þessara rannsókna, þeir
dr. Bjarni Sæmundsson og próf. Johs.
Schmidt flestum kunnir, sem og árang-
urinn af starfi þeirra.
Lifnaðarhættir helztu nytjafiska vorra,
eru nú i aðaldráttum þekktir. Hrygning-
arsvæði, hrygningartími, hrygningarskil-
yrði, áta, göngur o. fl. eru viðfangsefni,