Ægir - 01.02.1931, Page 9
ÆGIR
31
°g Norðfirði verður fiskur mældur i
stórum stíl (5 — 10 þús. á hverjum stað
á hverju ári), allt árið, á hálfs mánaðar
eða mánaðar fresti. Auk þess verður
safnað miklu af kvörnum og hreistri til
aldursrannsókna á öllum þessum stöðum.
Á vetrarverlíðinni verður lögð mikil
aherzla á mælingar og kvarnatöku við
Suðurland og í Faxaflóa, og fara þá
^am rannsóknir í Vestmannaeyjum,
Keflavik og Hornafirði.
Á hverjum slað verður valinn maður
hl þess að safna göngum. Mun honum
verða skýrt vel frá hvernig fara skuli að
°g fengið allt í hendur, sem að starfinu
tytur. Á alla þessa staði mun ég koma
sJálfur og safna gögnum við og við, en
annars verð ég að fela öðrum þetta þýð-
lngarmikla verk. Gögnin verða send til
^in til Reykjavíkur, vinn ég þar úr þeim,
pg mun árangurinn verða birtur í Ægi,
lafnóðum og rannsakað er.
Það er einnig ætlun okkar að heita á
^jálp botnvörpunganna og fá því komið í
framkvæmd, að á sumum þeirra verði
^ældur fiskur og teknar kvarnir við og
Vlð, enda er það nauðsynlegt, ef á að
Iannsaka fiskstofn djúpmiðanna.
h- Sildarrannsóknir eiga að íara fram
^ikínn hluta ársins, eftir því, sem gögn
Vlnnast til. Á sumrin á að mæla mörg
Pusund af síld og rannsaka aldur henn-
ar eftir hreistrinu, svo hægt verði að
§era sér grein fyrir eðli og stærð síldar-
slofnsins. þess skal getið, að mikill hluti
^ó'annsóknanna og svifrannsóknanna eru
§erðar einmitt vegna sildveiðanna. Seltan,
>nn og næringarefnin í sjónum breyt-
þSt. ^jög eftir árstíðum og eftir árferði.
^ Vl er árferði að átunni, þvi megn henn-
Vlðkoma og vöxtur byggist mjög á
1 sjávarins. Þess vegna verða síldar-
nsPknir, áturannsóknir, (svifrannsókn-
* °g sjórannsóknir að haldasl hönd í
hönd. Þvi þá, og þvi að eins, er hægt að
gera sér von um að skilja dutlunga og
hverflyndi sildarinnar einhverntíma i í
framtiðinni. Þorskrannsóknir eru þýðing-
armiklar, en síldarrannsóknir eru þýð-
ingarmeiri fyrir sjávarútveginn. Mörgum
hefur brestur á síldveiðunum á knékomið
eða jafnvel sært banasári.
Eins og lesa má að framan, er þessum
rannsóknum einkum sett það mark, að
kynnast þeim lögmálum, sem ráða sveifl-
unum i stærð og gildi fiskstofnsins, og
hafa þannig róltæk áhrif á útkomu afl-
ans. Það er varla hægt að gera sér von
um að auka fjölda nytjafiskanna með
klaki, því það mundi alls ekki svara
kostnaði. Það eina sem hægt er að gera,
er að vernda það sem til er og hlynna að
þvi, með röggsanilegri strandgæzlu o. þ.
h. Önnur áhrif getum við ekki haft á
vöxt og viðgang fiskstofnsins. En það,
sem ætti að vera aðalhugsjón rannsókn-
anna, þegar öllu er á botninn hvolft, er að
kynnast stofninum og þvi, sem veldur
breytingum i stærð hans og gildi, svo
vel, að hægt sé að segja fyrir um afla,
eða leiðbeina fiskimönnum og útgerð-
armönnum, og gefa þeim bendingar um,
hvað muni geta gefið góðan arð, eða hvað
sé tvísýnt, þetta árið eða hitt. En hvað
langt er að takmarki þessarar hugsjónar,
veit enginn enn þá. Þvi verður árangur
rannsóknanna að svara.
íslenzkir fiskimenn og útgerðarmenn I
Þær fiskirannsóknir, sem nú fara í hönd,
eru þjóðþrifafyrirtæki, en ykkur er fyrst
ætlað að njóta uppskerunnar. Þessar
rannsóknir eru enn þá barn í reifum, en
heita á ykkur til aðstoðar á öllum svið-
um, í öruggu trausti þess, að þið dauf-
heyrist ekki. Allt byggist fyrst á fremst
á því, að hægt sé að safna hagkvæmum
gögnum, og mun því verk þetta standa
eða falla með þátttöku ykkar. Hér er að