Ægir - 01.02.1931, Side 17
ÆGIR
39
verður þetta ár áreiðanlega um saman-
drátt útgerðarinnar en ekki útfærslu að
ræða, í þessum landsfjórðungi. Nýbygg-
ingar skipa og báta engar, eða ekki telj-
andi og mestar likur til, að ekki verði
hægt að koma mörgum ágætum fleytum
á flot, sem þegar eru til, eða þó það
yrði mögulegt, að menn sjái sér enga
hagnaðarvon 1 því og reyni það því ekki,
að þessu sinni. Ástæða væri til, að minn-
ast á starfsemi Sildareinkasölunnar i
þessu sambandi, undanfarin 3 ár og þá
einkum hið siðasta, en það mundi verða
talið af pólitískum rótum runnið, og geri
ég það þvi ekki að þessu sinni, því ég
vil ekki draga Ægi, sem ég geri ráð fyrir
að flytji þessa skýrslu, að orustuvelli i
pólitik, hann hefur sem betur fer, getað
sneitt fram hjá verulegum ásteitingar-
steinum í þeim efnum hingað til.
Með þessari lokaskýrslu minni fyrir
árið 1930, fylgja ýms plögg og greina-
gerðir, eins og venja hefir verið til, og
er þýðingarlaust að telja það upp hér.
Ég vil svo að endingu óska Fiskifé-
laginu, stjórn þess og öllum velunnur-
um þess og sjávarútvegnrins, gengis og
velfarnaðar á nýbyrjuðu ári.
Akureyri, 3. jan. 1931.
Páll Halldórsson.
Skýrsla
erindrekans í Vestfirðingafjórð-
ungi ágúst—desbr. 1930.
I 6. og 8. tbl. Ægis, var gefið yfirlit
yfir aflafenginn í veiðistöðvum fjórðungs-
ins á vetrarvertíðinni og yfir vorið. Skal
hér nú stutllega skýrt frá aflabrögðunum
yfir sumarið og haustið, jafnframt og
birt er skýrsla um ársaflann i fjórð-
ungnum.
Pað tímabil er jafnan eftirtekjuminnst
yfirleitt, á þorskveiðunum, og þær veiðar
lítt stundaðar í aðalveiðistöðvunum.
í Víkum varð sumaraflinn rýr, mest
vegna ógæfta. Haustafli sama og enginn.
Opnu vélbátarnir af Eyrum (Patreks-
firði), öfluðu afarilla yfirleitt, og hættu
flestir veiðum í ágúst. Færaveiðaskipin
þaðan öfluðu yfirleitt vel. Haustaflmn
brást algerlega.
t Tálknafirði varð sumar og haustafl-
inn lélegur, en þó mun betri en á Pat-
reksfirði.
í Arnarfirði er aflinn yfirleitt í léleg-
asta lagi á opnu bátana, og haustaflinn
brást nær algerlega. Allgóður aflivar þar
lítinn tíma um mánaðamótin október
og nóvember. —Þilskipaaflinn varð samt
ágætur þar á þessi tvö skip, er færaveið-
ar stunduðu. Kútter Geysir fékk nú um
550 skpd. í þurfisk, en síðastliðið ár um
um 540 skpd. 15 menn voru að jafnaði
undir færi. Er þetta hinn mesti afli.sem
fengist hefur á færaskip á Vestfjörðum,
og vist yfirleitt. — Skipstjóri er hinn
sami og áður, Kristján Árnason á Bildu-
dal, Hæstur í fiskdrætti varð Ásmundur
Jónasson, hinn sami og undanfarin ár.
Dráttur hans nam nú 71 skpd. í þur-
fiski, en i fyrra 65 skpd. Hefur víst eng-
inn maður dregið jafn mikið á færi yfir
sumarið, og er slíkt afburða dugnaður,
sem vert er að halda á lofti. Hitt Bildu-
dalsskipið, Njáll (skipstj. Jörundur Bjarna-
son) fékk um 475 skpd.
Aflahæzta þilskipið frá Þingeyri fékk
rúm 306 skpd. Mannaskortur hamlaði
þar þilskipaveiðunum. Annars var mikið
af sunnlenzkum fiski verkað á Þingeyri
í sumar af félaginu »Dofra«, auk þess
sem aflaðist á skipin þar úr firðinum.
Af Flateyri i Önundarfirði voru fisk-
veiðar i sumar að eins stundaðar af 2
litlum færaskipum, enyfir haustið gengu