Ægir - 01.02.1931, Qupperneq 18
40
ÆGIR
þaðan venju fremur margir bátar, um 6
að staðaidri, og öfluðu vel þegar gæftir
leyfðu. Auk þess sem aflaskýrslan greinir
var talsvert selt þaðan af fiski í togara i
nóvember og desember.
1 Súgandafirði var haustafli sömuleiðis
góður, og drjúgt aflaðist þar einnig i sum-
ar. þar hefur nú á þessu ári komið
meiri fiskur á land, en nokkru sinni
áður, eins og ársskýrslan sýnir. Enn-
fremur var nokkuð selt þaðan í togara í
haust, og mikið hert af ýsu.
í Bolungavik var og góður baustafli
yfirleitt, og einkum i desember. Sömu-
leiðis í Hnifsdal, en sumarróðrar voru
sama og ekkert stundaðir i þeim veiði-
stöðvum.
Sama er að segja um þá fáu báta, er
veiðar stunduðu úr ísafjarðarkaupstað.
Seinustu daga ársins fóru Samvinnulé-
lags-bátarnir til fiskjar, og kom Esja
hingað og flutti þann afla þeirra isvar-
inn til Englands. Urðu það um 1100
kassar, og seldist aflinn fyrir 1200 £. Var
fiskisölutilraun þessi gerð af Samvinnu-
félaginu og heildverzlun Ásgeirs Sigurðs-
sonar í Reykjavík, i félagi. Má segja að
tilrann þessi hafi heppnast vonum framar.
1 Mið-Djúpinu var haustaflinn sárlilill.
Fiskveiðar hafa ekki verið stundaðar í
Aðalvík, svo teljandi sé, síðan í júní-
mánuði.
Steingrímsfjarðaraflinn varð nú afleitur,
um helmingi minai en 1929. Sama er
að segja um Gjögur og Djúpavik, þar
sem 2—3 vélbátar héðan fra Djúpi stund-
uðu fiskiveiðar i sumar.
Að öðru leyti visast til eftirfarandi
skýrslu um ársaflann í veiðistöðvum
fjórðungsins s. 1. ár, þykir mér rétt, að
láta henni fylgja að þessu sinni skýrslu
um tölu fiskimanna og fiskiskipa í veiði-
stöðvunum. Vitanlega ber aðathugaþað,
að hér er ekki um skip og fiskimenn að
ræða, sem veiðar stunda að staðaldri.
Einnig er tala fiskimanna og skipa tals-
vert misjöfn á þeim tíma, sem fiskveið-
arnar eru stundaðar. Eg hefi sett manna-
töluna og skipa, sem næst því sem hún
er mest.
í Patrekstjarðaraflanum er togarafisk-
urinn langþjmgstur á metunum, um 3l00
skpd. Togararnir tveir frá ísafirði, lögðu
þar upp 291)0 skpd., og nokkuð af afla
þeirra, sem upp var lagt i Reykjavik, var
flutt hingað vestur til verkunar, en sá
afli er ekki talinn með hér.
Af heildarafla fjórðungsins er stórfisk-
ur talinn 29334 skpd., smáfiskur 19502,
ýsa 1777, upsi o. fl. 578 skpd. Tölurnar
innan sviga sýna aflaupphæðina 1929.
Prátt fyrir góðan afla viðast hvar i
fjórðungnum og sumstaðar ágætan i vet-
ur og vor, er afkoma útvegsins yfirleitt
bágborin, og enda viða um mikið tap
að ræða, þar sem fiskkaupin standa í
sambandi við útveginn, og einkum hjá
þeim, er eiga óseldan fisk frá sumrinu.
Mun þó ástandið í því efni víða verra
en hér vestra. Nokkrir bátar eiga þó
góðri afkomu að fagna eftir undanfarin
aflaár.
Skip þau, héðan, er sildveiðar stund-
uðu á Siglufirði í sumar, öfluðu yfirleitt
mjög vel, og er skýrt frá þeim afla i 9.
tbl. Ægis.
Hér á lsafirði var einungis saltað tæpar
4000 tn., auk þess, sem latið var í is-
húsin. Smásíld veiddist nú sama og engin,
örfáar tunnur hafa fengist endur og eins
í haust, og er það ekki teljandi. Smá-
síldarveiðin hefur undanfarin ár gefið
göðan arð, sildveiðimönnunum, svo og
saltendum og verkafólki, og er þvi til-
finnanlegt er þær bregðast gersamlega.
Fiskimjölsverksmiðjan hér í bænum,
sem nú er eign hlutalelagsins Fiskimjöl,
var aukin að nýjum vélum i fyrra, og