Ægir - 01.02.1931, Qupperneq 20
42
ÆGIR
Mætti vel svo fara, að veiðar þessar
yrðu drjúg tekjulind, þar sem greiðar
eru samgöngur, og hægt væri að stunda
þær að staðaldri, að voriogsumri. Enda
mun þá öllu meira um fisk þenna, sem
og er ágætar til beitu.
Fieira en hér hefur verið greint frá,
hefi ég ekkí að bæta við skýrslu mína,
að þessu sinni.
Isafiiði, 17. jan. 1931.
Krislján Jónsson,
frá Garðsstöðum.
Listi yfir samanlagða beitusíld notaða
í Norðlendingafjórðungi árið 1930.
Tunnur Verð óælað sem næst kr
Húsavík 1080 21600
Hrísey 1033 40825
Grenivík og Látraströnd 843 21075
Flatey og Firðir 286 7150
Ólafsfiöiður 2065 58200
Ái skógsströnd 317 7291
Héðinsljörður 48 912
Hofsós og Höfðaströnd 73 1085
Sauðárkrókur oa Skagi 152 2280
Skagaströnd og Khv. ... 312 4056
D.ilvik og grend 768 19700
Hvammst. og Vatnsnes 123 1476
Baufarhöfn og Slétta ... 36n 7665
Þórshöfn og Langanes... 344 7224
Akureyri 735 47140
Siglufjörður yfir árið .. 4800 134000
Samtals 13944 381689
Ég geri alls ekki ráð fyrir, að þess listi
sé algerlega nákvæmur, fyrir allar ver-
stöðvarnar, enda er þess tæplega að vænta,
svona í fyrsta sinn. en vænta mætti að
það væri nokkuð nærri því rétta, þvi á
þeim stöðum, sem ekki sáu sér mögu-
legt að gefa nákvæmar tölur, hafa ein-
stakir menn, sem ég hefi leitað upplýs-
inga hjá, gert áætlun eftir beztu þekk-
ingu bæði um magn og verðlag. Beitan,
sem Akureyri er talin, er eingöngu handa
5 skipum þaðan, sem 4 gengu á fiski-
veiðar fyrri part árs frá Suðurlandi og
eitt frá Vestfjörðum, en lögðu öll upp
afla að einhverju leyti á Akureyri, er á
vorið leið. Sú beita var öll frosin og sumri
komið í geymslu syðra og vedra og því
afardýr. — Frá Siglufirði er ómögulegt
að fá skýrslu, af mörgum ástæðum og
er því beitan þar talin mestmegnis eftir
áætlun, með hliðsjón af róðratjölda og
venjulegri lóðatölu i hverjum róðri, eftir
stærð bátanna. Sömuleiðis er verð beit-
unnar talið í hærra lagi, vegna þess að
framan af vertið'á sumri og ávalt að
vetri, er einungis um frosna síld eða
nýja beitu, flutta langt að, að ræða, sem
skiljanlega hleypir meðalverðinu mjög
upp.
Ég hefi reynt mikið til að komast fyrir
um beitunotkun í umdæmi mínu árin
1928 og 1929, en ekki getað fengið nein-
ar þær heildarupplýsingar, sem nokkuð
væri á að byggja, en þar á móti hefi ég
gert ráðstafanir til þess, að slikar upp-
lýsingar verði fáanlegar, að loknu ný-
byrjuðu ári, um beitunotkun þess.
Akureyri 29. desember 1930.
Páll Halldórsson.
Fundargerö.
Laugardaginn 6. des. 1930, var hald-
inn fundur í Fiskifélaginu Ægir á Þór-
arinsstaðaeyrum.
Fundarefni: Undirbúningur undir fjórð-
ungsþing.
1. Lagabreytingar Fiskifélags íslands.
Nefnd sem kosin var á fundi i deild-
inni 16. nóv. þ. á., lagði fram eftirfandi álit.