Ægir - 01.02.1931, Side 21
ÆGIR
43
»Við undirritaðir, sem fiskideildin Ægir
setti í nefnd, til að athuga lagabreytingar
Fiskiíélags íslands, sem komu frá milli-
þinganefnd, sem Fiskiþingið setti i það
mál. Höfum farið yfir þær breytingarog
álitum þær yfirleitt til bóta.
f*ó álitum við að lagaákvæði um sér-
stakan framkvæmdastjóra fyrir Fiskifé-
lag Islands, þurfi að athugast vandlega,
því okkur virðist að það hljóti að hafa
töluvert aukinn stjórnar- og framkvæmda-
kostnað í för með sér, og vafasamt hvort
það svarar kostnaði.
Fótt laun forseta hljóti að lækka mjög
mikið, þá má búast við að framkvæmda-
stjóri verði maður, sem a. m. k. hefur
ekki lægri laun en forseti hefur nú.
Oss virðist það vera. nægilega há laun
fyrir starfið, og það jafnvel, þó að hann
ferðaðist um veiðistöðvarnar í Sunnlend-
ingafjórðungi, án þess að fá sérstaklega
greiddan ferðakostnað, þvi oss sýnist
miða að því, að flest slík störfséu laun-
uð þannig, að ætlast megi til að starfs-
maðurinn sjái að mestu leyti íyrir sér
sjálfur við starf sitt, má segja það sama
utn erindrekana, eins og störf þeirra og
launakjör eru nú.
Oss virðist vanta skýr ákvæði i lög-
unum um, að forseti hætti störfum með
fullum launum, ef tillögurnar um fram-
kvæmdastjórann ná fram að ganga«.
í nefndinni:
Ólafur Guðjónsson, Herm. Vilhjálmsson,
Jón Þorsteinsson.
Eftir nokkrar umræður var samþykkt
svohljóðandi tillaga:
»Fundurinn telur sig að mestu leyti
fylgjandi frumvarpi þvi, er liggur fyrir
ftá milliþinganefndinni, sem kosin var á
siðasta Fiskiþingi, og felur fulltrúa deild-
arinnar að taka sérstaklega til ihugunar
a fjórðungsþinginu fjármálabliðina«.
2. Lesið upp bréf frá hr. Matthiasi
Þórðarsyni, sem fjallaði um félagsstofn-
un i þeim tilgangi, að koma á flutningi
á kældum eða isuðum fiski héðan af
Austurlandi og Vestm.eyjum til Englands.
Út af því var samþykkt í einu hljóði,
tillaga svohljóðandi:
»Fundurinn lýsir ánægju sinni yfir
þeirri hugmynd, sem lýsir sér i bréfi
því, eða erindi, sem lesið var upp fund-
inum, og vill mæla hið bezta með mál-
inu, og óskar að það gæti sem fyrst hlotið
heppilega leið til framkvæmda, og felur
fulltrúa sínum að fylgja málinu á fjórð-
ungsþinginu.
3. Síldaibræðslumál. í því kom fram
tillaga svohljóðandi:
»Fiskideildin Ægir skorar á fjórðungs-
þing Austfirðinga, að hefja öfluga sókn
um, að reist verði sildarbræðslustöð fyrir
Austurland, á næsta ári«.
Samþ. í einu hljóði.
4. Þá kom fram svohljóðandi tillaga,
samþ. i einu hljóði:
»Fiskideildin Ægir, lýsir undrun sinní
yfir ógildingu kosningar á fiskiþingsfull-
trúunum á siðasta Fiskiþingi, og vitir
þann anda, sem lýsir sér i því, jafnframt
beinir deildin því til fjórðungsþingsins,
að það haldi fast á því, að réttur fiski-
deildanna, um kosningu Fiskiþingsfull-
trúa, verði eigi jafn gerræðislega fyrir
borð borinn, eins og gert var á síðasta
Fiskiþingi«.
Á fundinum var minnst á gæzluskip
til að lita eftir veiðarfærum manna og
verja fyrir ágangi botnvörpunga, á íiski-
miðunum hér eystra.
Ennfremur var minnst á almenna sund-
kennslu og talið æskilegt, að Fiskifélagið
beitti sér fyrir því, og jafnvel að unnið
yrði að því, að sundkennsla yrði lög-
boðin um land allt.
Árni Vilhjálmss , Sigurður Vilhjálmsss.,
ritari. formaður.