Ægir - 01.02.1931, Síða 22
44
ÆGIR
Aðalfundur
Fiskifélags íslands.
Ár 1931, föstudaginn 13. febrúar, var
aðalfundur Fiskifélags íslands settur í
Kaupþingssalnuni í Eimskipafélagshús-
inu og hófst fundurinn kl. 1 */* e. h.
Forseti lélagsins, Kristján Bergsson.setti
fundinn og stakk upp á Magnúsi Blön-
dahl frarnkvæmdastjóra til þess að stýra
honum. Var hann samþj'kktur í einu
hljóði. Hann stakk upp á Arnóri Guð-
mundssyni til þess að vera ritari fund-
arins.
Fundarstjóri rannsakaði að löglega væri
boðað tii fundarins og lýsti hann yfxr
því, að svo væri.
Var þá tekið til dagskrár, sem var
svo hljóðandi:
1. Forseti gerir grein fyrir störfum fé-
lagsins á liðnu ári.
2. Útflutningur á kældum fiski.
3. Dragnótaveiðar.
4. Fiskirannsóknir.
5. Önnur mál, sem upp kunna að verða
borin.
Steindór Hjaltaiín og Ingvar Guðjóns-
son, útgerðarmenn á Akureyri, voru
mættir á fundinum samkvæmt umboði
frá Fiskideild Norðlendinga á Akureyri.
Fundarstjóri gaf þvi næst forseta fé-
lagsins orðið og gaf hann itarlega skýrslu
um störf félagsins á árinu 1930, deildir
þess og félagatölu. Hann minntist 3 æfi-
félaga, sem látist höfðu frá þvi síðasti
aðalfundur var haldinn, þeirra: Björns
Sigurðssonar fyrv. bankastjóra, Páls H.
Gislasonar kaupmanns og Hannesar Haf-
liðasonar skipstjóra, fyrr forseta félags-
ins. Þá minntist hann einnig Þorsteins
sál. Gislasonar frá Meiðastöðum, sem um
skeið var erindreki félagsins og með-
stjórnandi. Stóðu fundarmenn upp úr
sætum sínum til virðingar hinum latnu.
Engar umræður urðu um skýrslu fox*-
seta.
Var þá tekið fyrir 2 málið á dagskránni.
Úlflutningur á kœldum fiski:
Kristjan Bergsson reifði málið og lýsti
þeirri nauðsyn, sem væri á því fyrir ís-
lendinga að koma meiru af ferskum fiski
á erlendan markað, en verið hefur. Tóku
margir fundarmenn til máls isömuátt.
Steindór Hjaltalín stakk upp á, að kosin
væri 3ja manna nefnd í malið, sem skil-
aði áliti sinu á væntanl. framhaldsfundi
á morgun.
Tillagan var samþykkt í einu hljóði,
og í nefndina kosnir:
Þorst. Porsteinss. skipstj. með 13 atkv.
Kristján Bergsson með 9 atkv.
ólafur Björnsson Akranesi, með 8atkv.
með hlutkesti milli hans og Steindórs
Hjaltalín, sem einnig fékk 8 atkv.
Pá gaf fundarstjóri klukkustundar-
kaffihlé.
Fundur settur aftur kl. 53/* e. h.
Tekið fyrir 3. málið á dagskránni.
Dragnótaveiði.
Frummælandi var Kristján Bergsson.
Urðu fjörugar umræður um mahð og
voru mjög skiftar skoðanir xæðumanna
á þvi, að hve miklu leyti landhelgin
skyldi friðuð fyrir dragnótaveiði.
Að loknum umræðum, var svo hljóð-
andi tillaga borin upp og samþykkt með
10 atkv. gegn 4.
»Aðalfundur Fiskifélagsins skoraráAl-
þingi það, sem nú kemur saman, að
upphelja 8. gr. í lögum nr. 55, 7. nxaí
1928, um bann gegn dragnótaveiði í
landhelgi«.
Fundi frestað til laugardags 14. febr.
kl. 1V8 e. h., þar sem fundurinn hafði