Ægir - 01.02.1931, Síða 24
46
ÆGIR
mestu leyti á afkomu og gengi sjávarút-
vegsins, en eins og allir vita, á hann nú
af ýmsum orsökum mjög örðugt upp-
dráttar.
Vér teljum því eins og nú standa sakir,
brýna nauðsyn bera til þess, að hafistsé
handa um sölu nýs fisks.
Þar sem saltfisksframleiðslan er orðin
of mikil og of einhæf framleiðsluaðferð
og gerir meira en svara til eftirspurnar-
innar á þeim mörkuðum, sem vér höf-
um yfir að ráða ogeru heldur ekki tryggir
vegna gengissveiflna og óeirða, en kom-
andi timar hljóta meir og meir að gera
kröfur til nýmetis, og sú aðferð bindur
miklu minna af fé landsins og einstak-
linga i framleiðslunni heldur en hin
gamla aðferð.
Þá virðist oss þetta vera mikið vel-
ferðarmál, en hins vegar mest standa því
fyrir þrifum og skjótri úrlausn, skortur
á beinum samgöngum til þeirra staða,
þar sem fisksins er neytt og markaður
víðtækur, þess vegna leggjum við til, að
ríkið opni framleiðendum nú þegar að-
gang að enskum eða öðrum erlendum
markaði með beinum samgöngum, þannig:
Að samið verði við innlend eða erlend
gufuskipafélög um að halda uppi reglu-
bundnum ferðum, eða leigja að minnsta
kosti 2 skip, hentug til þessara flulninga.
Reykjavik 14. febr. 1931.
Þorsteinn Þorsteinsson, Kr. Bergsson,
Ól. B. Björnsson.
Eftir stuttar umræður voru tillögur
nefndarinnar samþvkktar i einu hljóði.
Þá var tekið fyrir 4. málið á dagskrá.
Fiskirannsóknir.
Dr. Bjarni Sæmundsson skýrði i stór-
um dráttum frá því, sem unnið hefði
verið í þágu fiskirannsókna, frá því að
Norðmenn hófu slíkar rannsóknir fyrir
60—70 árum til þessa dags og drap sér-
staklega á fiskirannsóknirnar hér við
land, sem ræðumaður hafði átt mikinn
þátti um hálfan fjórða tug ára.
Mag. scient. Árni Friðriksson gerði
grein fyrir þvi, hvernig rannsóknunum
yrði hagað hér á næstunni, og að hvaða
marki væri stefnt, nfl. að fá úrlausnir á
þvi, hvernig göngur þorsks og sildar hög-
uðu sér hér við land.
Fundarstjóri þakkaði þessum ræðu-
mönnum áhuga þeirra fyrir rannsóknar-
starfinu og upplýsingar þær, sem þeir
hefðu gefið fundarmönnum.
Forseti félagsins og Árni Friðriksson
ræddu nokkuð um samvinnu við Dani
um fiskirannsónir hér við land og þátt-
töku af hálfu íslands í fundi, sem halda
á i Kaupmannahöfn i þessum mánuði, í
Kommissionen for Danmarks Fiskeri- og
Havundersögelser.
Eftir uppástungu fundarstjóra varsam-
þykkt svo hljóðandi tillaga:
»Fundurinn skorar á stjórn Fiskifé-
lagsins að beitast fyrir því, að tekið
verði tilboði af hálfu Dana um sam-
vinnu i fiskirannsóknum hér við land
og fulltrúi fyrir landsins hönd verði
látinn mæta á væntanlegum hafrann-
sóknarnefndarfundi, sem halda á i K,-
höfn 26. þ. m«.
Fleiri kvöddu sér ekki hljóðs.
Bá var tekinn fyrir 5. liður dagskrár-
innar:
Önnur mál sem upp kunna að verða borin.
Ingvar Guðjónsson, fulltrúi Fiskideildar
Norðlendinga á Akureyri, bar fram svo
hljóðandi tillögu :
»Þar sem reynzla er fengin fyrir því,
að sildarleit með flugvélum hafi ekki
komið að tilætluðum notum, skorar
fundurinn á Fiskifélag íslands, að hlut-
ast til um það, að i hönd farandi Al-