Ægir - 01.02.1931, Blaðsíða 26
48
ÆGIR
»Flugfélagið haldi áfram starfsemi sinni,
við sildarleit, en gjaldið frá skipaeig-
endum lækki um helming«.
Tillagan samþ. í einu hljóði og til-
laga I. G. þar með fallin.
Þá vakti Benedikt Sveinsson alþm.
máls um raddir þær, sem fram hafa
komið um að breyta fyrirkomulagi Fiski-
félagsins, og mótmælti harðlega slíkri
breytingu. Tóku margir fundarmenn í
sama streng og urðu fjörugar umræður
um málið.
Bened. Sveinsson bar fram svo hljóð-
andi tillögu:
»Fundurinn mótmælir eindregið þeim
röddum, er fram hafa komið um það,
að leggja niður Fiskifélag lslands eða
ríra starfssvið þess, og telur þvert á
móli brýna nauðsyn til að efla félagið
svo að það geti starfað að sínu leyti
fyrir sjávarútveginn, á borð við það,
sem Búnaðarfélag lslands starfar fyrir
landbúnaðinn«.
Tillagan samþ. með 20 atkv., enginn
greiddi atkv. gegn henni.
hóf Steindór Hjaltalín, fulltrúi
Fiskideildar Norðlendiuga á Akureyri,
umræður um:
Tolla- og skattaálögur á sildarútgerðinni.
Hann bar fram svo hljóðandi tillögu:
»Fundurinn skorar á Alþingi, að lækka
útílutningsgjald af sild og síldarafurð-
um, svo það sé ekki hærra, en af öðr-
um útfluttum afurðum landsmanna,
svo sem fiski, kjöti, ull o. s. frv.«
Tillagan samþ. í ein hljóði.
Fleira ekki tekið fyrir.
Fundarmenn þökkuðu fundarsfjóra
röggsamlega fundarstjórn.
Fundi slitið kl. 5 e. h.
Magnús Blöndahl, Arnór Guðmundsson,
fundarstj. fundarskrifari.
Fréttir úr ýmsum áttum.
Frá Noregi, Samkvæmt fréttum frá
Noregi, nú í síðustu blöðum, verða þar
gerðar stórvægilegar tilraunir til að auka
sölu á saltfiski verkuðúm á líkan hátt
og Islendingar. Hafa verið veittar af op-
inberu fé 50 þús. kr. til tilrauna þessara.
Á að gera tilraunina með Labrador-
verkaðan fisk, þveginn og pressaðan fisk
og létt þurkaðan fisk; eiga sendingar þess-
ar að fara bæði til Spánar og Italiu.
Eftirlit og umsjón með verkuninni hefur
verið falið yfirfiskimatsmanni Bugge í
Bodö, en fiskifuiltrúi Norðmanna í Portú-
gal, Thingvold, dvelur nú í Noregi og
lylgist með tilraunum þessum, og fylgir
þeim síðan eftir til neyzlulandanna og
sér um sölu afurðanna.
Ennfremur hafa verið veittar 50 þús.
kr. til þess að gera tilraunir með út-
flutning á flöttum, frosnum fiski (fileter).
Fyrir tilraunum þessum stendur Johs.
A. Jacobsen frá Niðarósi; ferðaðist hann
um i Bandarikjunum síðastliðið ár til
þess að kynna sér, hverjar kröfur Ame-
ríkumenn gera til fiskjar verkaðan á
þennan hátt. Býst hann við að fyrsta til-
raunasendingin ca 15 smálestir verði til-
búin um miðjan febrúar og á hún að
fara til Bandarikjanna, og ætlar Jacobsen
að fy*8Ía sendingunni þangað og jafn-
framt að kynnasér af eigin reynd, hvernig
hún kemur fram, og hvernig hún fellur
Ameríkumönnum í geð, áður en fleiri
sendingar verða sendar þangað,
Jafnframt á að gera tilraun meðsend-
ingu til fleiri landa. t. d. Sviss, ítaliu og
Póllands.
Ritstjóri: Sveinbjörn Egilson.
RikisprentsmiCjan Gutcnberg.