Skinfaxi - 01.02.2009, Blaðsíða 10
10 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
kvöldi fimmtudagsins 9. júlí um afreks-
þjálfun og leiðina að Ólympíugullinu.
Þá skal það nefnt að í aðdraganda
Landsmótsins, dagana 6.–9. júlí, standa
Siglingasamband Íslands og Siglinga-
klúbburinn Nökkvi fyrir æfingabúðum
fyrir siglingakrakka af öllu landinu á
Pollinum. Í tengslum við æfingabúð-
irnar er stefnt að því að hafa kynningu á
kjölbátasiglingum, kæjakróðri o.fl. Það
verður því örugglega mikið líf og fjör á
Pollinum alla landsmótsvikuna.
Nýr íþróttaleikvangur
verður miðpunktur
mótshaldsins
Þó svo að keppt verði í einstaka lands-
mótsgreinum í fjölmörgum íþrótta-
mannvirkjum Akureyrar verður mið-
punktur mótshaldsins á nýjum íþrótta-
leikvangi, sunnan Hamars, félagsheimil-
is Íþróttafélagsins Þórs, sem Akureyrar-
bær er nú að byggja upp. Síðastliðið
haust var lokið við að þökuleggja hinn
nýja íþróttavöll. Í vetur hefur verið unn-
ið við byggingu stúku við leikvanginn
og þeirri framkvæmd verður fram hald-
ið fram að móti í júlí. Í vor verður lokið
við lagningu hlaupabrauta og annan frá-
gang sem þarf að ljúka áður en mótið
hefst 9. júlí.
Keppendatjaldsvæði verða á Rangár-
völlum þar sem voru tjaldsvæði í tengsl-
um við fjölskylduhátíð um verslunar-
mannahelgina á Akureyri sl. sumar.
Tjaldsvæði fyrir gesti mótsins verða á
tjaldsvæðum Akureyrarbæjar, annars
vegar við Þórunnarstræti og hins vegar
á Hömrum, sunnan Akureyrar.
Formleg mótssetning verður á hinum
nýja íþróttaleikvangi föstudagskvöldið
10. júlí og þar fara mótsslit einnig fram
sunnudaginn 12. júlí.
Heimasíða mótsins
Heimasíða Landsmóts UMFÍ á Akureyri
er á slóðinni www.landsmotumfi.is.
Þar má finna ýmsar upplýsingar um mót-
ið, allt þar til það hefst 9. júlí. Munu
stöðugt birtast þar nýjustu fréttir og upp-
lýsingar. Er fólk hvatt til að fylgjast vel
með upplýsingum í gegnum heima-
síðuna.
Lögð verður áhersla á að vera í nánu
sambandi við héraðssambönd og íþrótta-
bandalög, enda er það það ein af lykil-
forsendum þess að hægt sé að halda gott
og eftirminnilegt landsmót. Þess vegna
Frá vinstri: Björk Jakobsdóttir, bæjar-
stjóri á Akureyri, Helga Guðrún Guðjóns-
dóttir, formaður UMFÍ, Kristján Þór
Júlíusson, formaður landsmótsnefndar,
og Haukur Valtýsson, varaformaður
landsmótsnefndar. Í landsmótsnefnd
er fólk hvatt til þess að leita upplýsinga
þegar og ef spurningar vakna. Móts-
haldarar munu leggja sig fram um að
greiða götu allra eins og unnt er.
Framkvæmdastjóri Landsmótsins á
Akureyri er Ómar Bragi Stefánsson.
Síminn hjá honum er 453 7070, GSM
898 1095. Netfang: omar@umfi.is
Verkefnastjóri Landsmótsins er Óskar
Þór Halldórsson. Síminn hjá honum er
898 4294. Netfang: oskar@athygli.is eða
oskar@umfi.is (frá og með 1. mars).
Skrifstofa Landsmótsins var opnuð í
byrjun mars á Akureyri og má finna upp-
lýsingar um hana á heimasíðu mótsins.
eiga einnig sæti Aðalbjörg Hafsteins-
dóttir, Árni Arnsteinsson, Gísli Pálsson,
Guðmundur Sigvaldason Hringur
Hreinsson, Jóhanna Gunnlaugsdóttir,
Ólafur Jónsson, Óskar Þór Halldórsson
og Sæmundur Runólfsson.
Frá kynningarfundi Landsmótsnefndar á Akureyri
„Mótið leggst sérlega vel í mig og all-
ur undirbúningur hefur gengið sam-
kvæmt áætlun. Aðkoma mín að mót-
inu snýr aðallega að verkskipulagi og
fjármögnun og ég hef átt frábært sam-
starf við Hauk Valtýsson, varaformann
landsmótsnefndar. Undirbúnings-
nefndin hefur verið mjög þétt og góð
og unnið mjög gott starf. Þarna er
fólk sem kann til verka og býr yfir
mikilli reynslu. Þar af leiðandi hefur
undirbúningur gengið eins og í sögu,“
segir Kristján Þór Júlíusson, formað-
ur landsmótsnefndar á Akureyri, í
samtali við Skinfaxa.
Krist ján Þór Júlíusson, formaður landsmót snefndar á Akureyri:
Mikil uppbygging sem allir munu njóta góðs af
– Hvernig er stemningin á Akureyri fyrir
mótinu í sumar?
„Ég finn ekki annað en að stemning-
in sé mjög góð og við eigum von á tölu-
verðum hópi fólks í tengslum við mótið.
Við höfum átt frábært samstarf við Akur-
eyrarbæ og íþróttafélögin í bæjarfélag-
inu í öllu því sem lýtur að undirbúningi
fyrir mótið. Ég met það svo að íþrótta-
hreyfingin á Akureyri sé tilbúin að mæta
þessu móti og eigi eftir að gera það með
sóma. Ég er viss um að bærinn og íþrótta-
hreyfingin í heild sinni eigi eftir að njóta
góðs af mótinu en því samfara hefur átt
sér stað mikil uppbygging sem allir munu
njóta góðs af í framtíðinni.“
Kristján Þór sagði það löngu orðið
tímabært að aðstöðu fyrir frjáls-
íþróttafólk yrði komið upp á Akur-
eyri. Að því hefur verið stefnt í
nokkurn tíma og nú er það að verða
að veruleika. Allt hefur sinn tíma
varðandi uppbyggingu svona mann-
virkja.
„Ég er afar stoltur og þakklátur
því góða fólki sem hefur komið að
skipulagningu mótsins. Okkar bíður
gott mót og ég veit líka að veðurguð-
irnir eiga eftir að verða okkur hlið-
hollir,“ sagði Kristján Þór.