Skinfaxi - 01.02.2009, Blaðsíða 12
12 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Knattspyrnudeild Ungmennafélags
Selfoss og IFK Gautaborg í Svíþjóð
hafa gert með sér samstarfssamn-
ing. Samningurinn felur m.a. í sér að
Selfyssingar hafa aðgang að leik-
mönnum sem komast ekki í endan-
legan leikmannahóp hjá IFK Gauta-
borg.
Håkan Mild, knattspyrnustjóri IFK
Gautaborgar, telur þetta mjög áhuga-
verðan kost fyrir IFK og að það geti nýst
ungum og efnilegum leikmönnum til
að takast á við verðug verkefni. Þetta
sé mikil áskorun fyrir efnilega leikmenn
frá þeim og gæti orðið lyftistöng á ferli
þeirra. Einnig mun IFK senda þjálfara
sína til að halda námskeið fyrir unglinga-
Knattspyrnudeild Umf. Selfoss
í samstarf við IFK Gautaborg
þjálfara og knattspyrnuskóla fyrir yngri
leikmenn Selfoss og nágrennis.
Áhugi beggja aðila stendur til þess
að koma á fót samstarfi sem nái yfir öll
svið knattspyrnunnar og bæði hinn
knattspyrnulega og rekstrarlega þátt.
Fyrsta skrefið verður tekið í apríl en þá
fer sendinefnd á vegum Umf. Selfoss í
heimsókn til Gautaborgar. Í þeim hópi
verða þjálfarar meistaraflokks, Gunn-
laugur Jónsson og Ómar Valdimarsson,
ásamt fulltrúum meistaraflokksráðs og
stjórnarinnar. Einnig munu tveir leik-
menn fara með.
Þess má síðan vænta að sendinefnd
frá IFK Gautaborg komi í heimsókn í
sumar og kynni sér unglingastarf og
rekstur knattspyrnudeildar Umf. Sel-
foss. Sérstaklega vilja Svíarnir kynna
sér innra félagsstarf deildarinnar,
þ.e.a.s. hvernig félagsmenn halda hóp-
inn utan knattspyrnunnar.
IFK Gautaborg mun gefa Umf. Sel-
foss tækifæri á að senda unga og efni-
lega leikmenn í æfingabúðir félagsins,
sem haldnar eru á haustin ár hvert, en
þá fara efnilegustu leikmenn þeirra í
stutta æfingaferð. Síðan verður einnig
kostur á að senda unga leikmenn til
æfinga með unglingaliðum IFK Gauta-
borgar þegar það hentar báðum aðil-
um, allt árið um kring. Einnig hafa ungl-
ingaþjálfarar Selfoss möguleika á að
kynna sér þjálfun hjá Svíunum.
Hugmynd beggja aðila er að skapa
sterk vináttutengsl og þróa þetta sam-
starf á þann hátt að það gefi sem flesta
möguleika þegar fram í sækir. Sérstak-
lega hafa báðir aðilar rætt um að auka
tengsl við samstarfsfyrirtæki beggja
félaganna og gefa þeim tækifæri á að
mynda tengsl milli landanna. Stjórn
knattspyrnudeildar Umf. Selfoss hefur
jafnframt aðgang að þeim fjölbreyttu
leiðum sem IFK Gautaborg á kost á
með samstarfsfyrirtækjum sínum.
Jón Pétur Róbertsson, þjálfari 2.
flokks Selfoss, og Håkan Mild hjá IFK
Gautaborg hafa undirbúið samninginn
fyrir hönd félaganna.
Með IFK Gautaborg leika Ragnar
Sigurðsson og Hjálmar Jónsson, en
þeir hafa orðið bæði Svíþjóðarmeistar-
ar og bikarmeistarar með félaginu.
Ungmennafélagið Hvöt á Blönduósi
varð Íslandsmeistari karla í innan-
hússknattspyrnu, futsal, 11. janúar
sl. en liðið lagði Víði úr Garði, 6:2, í
úrslitaleik sem fram fór í íþrótta-
húsinu í Austurbergi. Sigurður R.
Pálsson gerði þrjú mörk fyrir Hvöt í
úrslitaleiknum og þeir Halldór Hall-
dórsson, Aron Bjarnason og Gissur
Jónasson eitt mark hver. Bæði mörk
Víðis gerði Björn Ingvar Björnsson.
Þessi sigur ræður því að Hvöt fær
sæti í Evrópukeppni meistaraliða í
futsal en þess má geta að Víðir tók
þátt í keppninni í fyrra.
HK/Víkingur tryggði sér Íslands-
meistaratitilinn í kvennaflokki með
því að leggja Sindra frá Hornafirði í
úrslitaleik, 6:1.
Ungmennafélagið Hvöt í Evrópukeppnina
Liðsmenn Hvatar fagna góðum sigri .
Meistarar-
flokkur Umf.
Selfoss 2008.