Skinfaxi - 01.02.2009, Side 18
18 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Framkvæmda-
stjóri HSV fund-
aði með starfs-
mönnum UMFÍ
Kristján Þór Kristjánsson, framkvæmda-
stjóri Héraðssambands Vestfirðinga, HSV,
átti 9. janúar sl. fund með Sæmundi Run-
ólfssyni, framkvæmdastjóra UMFÍ, og
starfsmönnum UMFÍ í þjónustumiðstöð
UMFÍ. Fram kom að mikið og öflugt starf
er unnið innan HSV og mörg og spenn-
andi verkefni bíða héraðssambandsins.
Kristján Þór tók við starfi framkvæmda-
stjóra HSV á haustdögum en hann hefur
tengst starfi héraðssambandsins lengi
sem iðkandi og núna í stjórnunarstörfum.
Nemendur FB í
heimsókn í Þjón-
ustumiðstöð UMFÍ
Um 30 nemendur við Fjölbrautaskól-
ann í Breiðholti komu í heimsókn í
þjónustumiðstöð UMFÍ í febrúar til að
kynnast starfsemi hreyfingarinnar.
Nemendurnir voru flestir af íþrótta-
braut skólans og komu í fylgd Torfa
Magnússonar, íþróttakennara við skól-
ann. Nemendurnir fræddust um verk-
efni sem UMFÍ vinnur að og sýndu því
sem þeir kynntust mikinn áhuga.
Nemendur af íþróttabraut Fjöl-
brautaskólans í Breiðholti hafa komið
reglulega hin síðustu ár í heimsókn
í þjónustumiðstöðina. Þó nokkuð er
um það að hópar komi og fræðist um
starfsemina innan UMFÍ.
Frá vinstri Kristján Þór Kristjánsson, framkvæmda-
stjóri HSV, Alda Pálsdóttir, skrifstofustjóri UMFÍ, og
Sæmundur Runólfsson, framkvæmdastjóri UMFÍ.
Nemendur Fjölbrautaskólans í
Breiðholti sem komu í heimsókn
á þjónustumiðstöð UMFÍ.
Ársþing UMSE var haldið í Dalvíkur-
skóla 21. mars sl. Þingstörf gengu vel
en á þinginu kom fram að iðkendum
og keppendum fjölgaði gríðarlega á
síðasta starfsári. Ákveðið var að UMSE
og UFA sendu sameiginleg lið á Lands-
mótið á Akureyri og Unglingalands-
mótið á Sauðárkróki í sumar eins og
undanfarin ár.
Hringur Hreinsson, stjórnarmaður í
Ársþing UMSE var haldið í Dalvíkurskóla:
Starri Heiðmarsson sæmdur starfsmerki UMFÍ
UMFÍ, sótti þingið og sæmdi Starra
Heiðmarsson starfsmerki UMFÍ. Starri,
sem gegnt hefur varaformennsku hjá
UMSE, lét af störfum og í hans stað var
Kristín Hermannsdóttir kjörin varafor-
maður.
Í stjórn UMSE sitja nú: Sigurður
Hólmar Kristjánsson, formaður, Kristín
Hermannsdóttir, varaformaður, Anna
Kristín Árnadóttir, gjaldkeri, Kristlaug
María Valdimarsdóttir, ritari, og
Jóhanna Gunnlaugsdóttir, meðstjórn-
andi. Varamenn eru Sigurður Bjarni
Sigurðsson, Þorgerður Guðmunds-
dóttir og Eyrún Elva Marinósdóttir.
Björgvin Björgvinsson, skíðamaður
frá Dalvík, var kjörinn íþróttamaður
UMSE 2008.