Skinfaxi - 01.02.2009, Page 22
22 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Ungt fólk og lýðræði:
Dagana 4.–5. mars sl. stóð Ungmenna-
félag Íslands fyrir ráðstefnu á Akur-
eyri sem bar yfirskriftina Ungt fólk
og lýðræði. Ráðstefnan var haldin í
samvinnu við Háskólann á Akureyri.
Að sögn Guðrúnar Snorradóttur,
landsfulltrúa UMFÍ, gekk ráðstefnan
mjög vel. Fjöldi þátttakenda var mun
meiri en búist hafði verið við, en um
80 manns sótti ráðstefnuna.
Markmið ráðstefnunnar var að
skapa umræðuvettvang fyrir fólk á
aldrinum 13–25 ára sem er að stíga
sín fyrstu skref sem fulltrúar í ung-
mennaráðum félagasamtaka og sveit-
arfélaga. Ráðstefnan var einnig opin
öðrum áhugasömum um ungmenna-
ráð og lýðræðislega þátttöku ungs fólks.
Á 43. sambandsþingi UMFÍ, sem
haldið var á Sauðárkróki í október
2003, var samþykkt að stofna ung-
mennaráð innan UMFÍ sem skipað
væri fólki á aldrinum 15–25 ára. Í
ályktuninni segir: „Markmið ung-
mennaráðs verði m.a. að ungmenni
fái markvisst aukna ábyrgð og tæki-
færi til að taka beinan þátt í ákvarð-
anatöku um mótun þess félags- og
tómstundastarfs sem þau eru virk í
og tengja skoðanir þeirra í auknum
mæli inn í starf ungmennafélags-
hreyfingarinnar.“
Á 44. sambandsþingi UMFÍ, sem
haldið var á Egilsstöðum í október
Gagnleg ráðstefna á Akureyri
2005, fól stjórnin UMFÍ, í samvinnu við
ungmennaráð, að standa fyrir lands-
þingi ungmenna frá öllum aðildarfélög-
um UMFÍ.
Í lögum nr. 70 um æskulýðsmál, sem
tóku gildi 5. apríl 2007, segir: „Sveitar-
stjórnir hlutist til um að stofnuð séu
ungmennaráð. Hlutverk ungmennaráða
er m.a. að vera sveitarstjórnum til ráð-
gjafar um málefni ungs fólks í viðkom-
andi sveitarfélagi. Sveitarstjórnir setja
nánari reglur um hlutverk og val í ung-
mennaráð.“ Mörg sveitarfélög og félaga-
samtök hafa brugðist við og stofnað ung-
mennaráð.
Ráðstefnuna á Akureyri sátu fulltrúar
ungmennaráða, umsjónarmenn þeirra
auk annarra áhugasamra um lýðræðis-
þátttöku ungs fólks.
Áhugaverðir fyrirlestrar voru haldnir
og eftir þá fóru fram fróðlegar og spenn-
andi umræður. Guðrún segir að almenn
ánægja hafi verið með ráðstefnuna og
þátttakendurnir í sjöunda himni með
þetta framtak. Umræðan um þennan
málaflokk hefði svo sannarlega verið þörf.
Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formað-
ur UMFÍ, setti ráðstefnuna og Katrín
Jakobsdóttir menntamálaráðherra flutti
ávarp. Erlendir gestir fluttu fyrirlestra á
ráðstefnunni og má þar nefna Jean Luc
Frast frá ISCA en fyrirlestur hans fjall-
aði um æskulýðsstarf í Evrópu.
Þá fjölluðu norskir fyrirlesarar um
ungmennaráð í Noregi. Margrét María
Sigurðardóttir, umboðsmaður barna, og
Hildur Inga Sveinsdóttir, fulltrúi í ung-
mennaráði Reykjavíkur, fluttu einnig
áhugaverð erindi.
Þá fjallaði Ágúst Þór Árnason um
ungt fólk og lýðræði og Arnfríður Sól-
rún Valdimarsdóttir um lýðræðislegt
uppeldi.
Niðurstöður úr hópavinnu voru rædd-
ar og sýndur hlutverkaleikur undir heit-
inu Ég og Sameinuðu þjóðirnar, við góð-
ar undirtektir.
Sigrún Björk Jakobsdóttir, bæjarstjóri
á Akureyri, ávarpaði ráðstefnuna og
sleit síðan velheppnaðri ungmennaráð-
stefnu.