Skinfaxi - 01.02.2009, Page 32
32 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Sævar Þór íþróttakarl Árborgar
og Katrín Ösp íþróttakona
Árborgar
Knattspyrnumaðurinn Sævar Þór
Gíslason var kjörinn íþróttakarl
Árborgar 2008 á uppskeruhátíð ÍTÁ
29. desember sl. Sævar Þór ólst upp á
Selfossi, lék þar upp alla yngri flokka
og með meistaraflokki frá 17 ára til
22 ára aldurs. Þá fór hann í úrvalsdeildina og vakti
strax verðskuldaða athygli. Sævar Þór kom svo heim
á Selfoss aftur árið 2007, eftir níu ár í Reykjavík. Er
á engan hallað þótt hann sé talinn lykilmaður í
þeirri uppbyggingu sem verið hefur í fótboltanum
á Selfossi síðustu tvö ár. Eftir að Sævar kom aftur
heim á Selfoss árið 2007 hefur hann leikið 37 leiki
og skorað í þeim 37 mörk sem er ótrúlegur árangur.
Mark í leik sýnir að sennilega hefur Sævar sjaldan
verið í betra formi, enda að mestu laus við meiðsli
undanfarin ár. Með þessum árangri varð hann
markakóngur og besti leikmaður 2. deildar árið
2007 og markakóngur í 1. deild árið 2008. Að sjálf-
sögðu var hann valinn í lið ársins bæði árin.
Katrín Ösp Jónasdóttir var kjörin íþróttakona Ár-
borgar 2008. Katrín Ösp er 16 ára og keppir í hóp-
fimleikum með HM1–liði Selfoss sem er meistara-
hópur Selfoss í hópfimleikum og samanstendur af
20 stúlkum á aldrinum 15–23 ára. Katrín Ösp er
mikilvægur liðsmaður í dansliðinu en lið Selfoss hef-
ur vaxið mjög undanfarin ár og hefur með miklum
aga og stífum æfingum náð markmiðum sem voru
skýjaborgir í upphafi. Fyrst var að ná lágmörkum
fyrir Norðurlandamót Juniora sem er keppni 13–18
ára í hópfimleikum á Norðurlöndum og mega mest
tvö lið keppa fyrir hvert land. Selfoss náði því mark-
miði og keppti í Bergen í apríl á þessu ári. Því næst
var að keppa á úrtökumóti til að ná sæti inn á
Evrópumót í Team-gym, sem er keppni 16 ára og
eldri og hafðist það líka með mikilli baráttu og
keppnisanda. Katrín Ösp var mikilvægur liðsmaður
í báðum þessum verkefnum, gaf aldrei neitt eftir
og barðist eins og hetja fyrir sitt lið.
Erla Dögg íþróttamaður
Reykjanesbæjar
Erla Dögg Haraldsdóttir var um ára-
mótin valin íþróttamaður Reykjanes-
bæjar 2008. Erla Dögg var erlendis og
tók systir hennar, Kristín Bára Haralds-
dóttir, á móti verðlaununum fyrir henn-
ar hönd. Þetta er í þriðja skipti sem
Erla Dögg er valin íþróttamaður árs-
ins, hin skiptin voru 2005 og 2007. Síðastliðið ár
var stórkostlegt hjá Erlu Dögg Haraldsdóttur. Alls
setti hún 10 Íslandsmet á árinu 2008 sem var rúm-
lega þriðjungur þeirra meta sem sett voru á Íslandi
það ár. Enginn annar íslenskur sundmaður setti jafn-
mörg met á árinu. Hún náði lágmörkum í þremur
greinum fyrir Ólympíuleikana í Peking og keppti í
tveimur þeirra. Hún komst í úrslit á tveimur alþjóð-
legum mótum í Mare Nostrum-mótaröðinni.
Bjarki Már íþróttamaður
Skagafjarðar
Bjarki Már Árnason, knattspyrnu-
maður í Tindastóli, var kjörinn íþrótta-
maður Skagafjarðar í hófi sem UMSS
og Sveitarfélagið Skagafjörður hélt í
Frímúrarahúsinu á Sauðárkróki 29.
desember sl. Á feyki.is er skemmtileg
syrpa mynda af skagfirskum íþróttamönnum sem
voru tilnefndir til þess að hljóta sæmdarheitið
íþróttamaður Skagafjarðar og sömuleiðis af efni-
legum ungum íþróttakrökkum sem hlutu sérstaka
viðurkenningu. Í öðru sæti í kjörinu varð Mette
Mannseth, hestakona í Hestamannafélaginu Létt-
feta, og í þriðja sæti varð Ísak Einarsson, körfu-
knattleiksmaður í Tindastóli.
Gunnleifur og Linda Björk
íþróttamenn ársins í Kópavogi
Gunnleifur V. Gunnleifsson, knatt-
spyrnumaður í HK, og Linda Björk
Lárusdóttir, frjálsíþróttakona í
Breiðabliki, voru kjörin íþróttakarl og
íþróttakona Kópavogs fyrir árið 2008.
Flokkur ársins var kjörinn P–1 meist-
araflokkshópur Gerplu í hópfim-
leikum. Kjörinu var lýst á Íþróttahátíð Kópavogs í
Salnum 8. janúar sl. Gunnleifur hefur um árabil
verið meðal bestu markvarða íslenskrar knattspyrnu.
Íþróttafólk ársins
LEIGJUM ÚT OG ÞJÓNUSTUM VATNSSALERNI
á íþróttamót og hverskyns mannam ót
Borgarflöt 15 :: 550 Sauðárkrókur
Sími: 891 9181 :: Fax: 453 5778
Netfang: okgam@simnet.is
NÝ
PR
EN
T