Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.05.2009, Blaðsíða 6

Skinfaxi - 01.05.2009, Blaðsíða 6
6 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands Skinfaxi 2. tbl. 2009 Ritstjóri: Jón Kristján Sigurðsson. Ábyrgðarmaður: Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ. Ljósmyndir: Jón Kristján Sigurðsson, Ómar Bragi Stefánsson, Óskar Halldórsson, Skapti Hallgrímsson o.fl. Umbrot og hönnun: Indígó. Prentun: Prentmet. Prófarkalestur: Helgi Magnússon. Auglýsingar: Miðlun ehf. og Gunnar Bender. Ritnefnd: Björg Jakobsdóttir, formaður, Anna R. Möller og Sigurður Guðmundsson. Skrifstofa UMFÍ/Skinfaxa: Þjónustumiðstöð UMFÍ, Laugavegi 170–172, 105 Reykjavík. Sími: 568-2929 Netfang: umfi@umfi.is Heimasíða: www.umfi.is Starfsmenn UMFÍ: Sæmundur Runólfsson, framkv.stjóri, Ómar Bragi Stefánsson, landsfulltrúi, með aðsetur á Sauðárkróki, Guðrún Snorradóttir, landsfulltrúi og verkefnisstjóri forvarna, Helgi Gunnarsson, fjármálastjóri, Jón Kristján Sigurðsson, ritstjóri Skinfaxa og kynningarfulltrúi, Alda Pálsdóttir, skrifstofustjóri, Sigurður Guðmundsson, fræðslumál. Stjórn UMFÍ: Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður, Ásdís Helga Bjarnadóttir, varaformaður, Björn Ármann Ólafsson, gjaldkeri, Örn Guðnason, ritari, Hringur Hreinsson, meðstjórnandi, Einar Haraldsson, meðstjórnandi, Björg Jakobsdóttir, meðstjórnandi, Eyrún Harpa Hlynsdóttir, varastjórn, Haraldur Þór Jóhannsson, varastjórn, Jóhann Tryggvason, varastjórn, Einar Jón Geirsson, varastjórn. Forsíða: Frá flugeldasýningu á 9. Unglingalands- móti UMFÍ sem haldið var að Laugum í Reykjadal um verslunarmannahelgina 2006. 26. Landsmót UMFÍ og 12. Ungl- ingalandsmót UMFÍ verða haldin í sumar. Óhætt er að segja að hér sé um flaggskip hreyfingarinnar að ræða. Af fréttum að dæma ætla Íslendingar að ferðast í enn meira mæli um landið sitt í sumar en áður og því er það álitlegur kostur að sækja þessi mót og taka þátt í þeim. Landsmótið á Akureyri verður haldið dagana 9.–12. júlí nk. Umgjörð mótsins verður í alla staði glæsileg og vandað til verka í hvívetna. Mikið uppbyggingar- starf er að baki á Akureyri og stórglæsileg íþróttamannvirki blasa við sem notuð verða um ókomin ár. Þeir sem að mótinu standa sjá nú laun erfiðis síns og geta borið höfuðið hátt. Það þarf áræðni, þor og kjark til að ráðast í að halda svo stórt mót sem þetta. Með sameiginlegu átaki allra þeirra sem að verkum hafa komið hefur tekist að koma upp aðstæð- um sem allir geta verið stoltir af. Stór hópur sjálfboðaliða kemur að framkvæmd mótsins með ein- um eða öðrum hætti. Öll undir- búningsvinna verður léttari og er óhætt segja að framlag þeirra til mótanna sem og í hreyfingunni allri sé ómetanlegt. Þeim ber að þakka fyrir fórnfúst og frábært vinnuframlag. Framkvæmdaaðilar 12. Ungl- ingalandsmóts UMFÍ, sem verður haldið 31. júlí – 2. ágúst á Sauð- árkróki, hafa lagt mikinn metnað í alla undirbúningsvinnu. Unglinga- landsmótin eru með stærstu íþróttamótum sem haldin eru hér á landi. Mótin eru kjörinn staður fyrir alla fjölskylduna til að koma á og eiga skemmtilega og ánægju- lega daga um verslunarmanna- helgina. Unglingalandsmótin hafa sannað gildi sitt og á þau kemur sama fólkið ár eftir ár. Mótin draga til sín þúsundir gesta sem skemmta sér saman í heilbrigðu umhverfi. Á Sauðárkróki er glæsi- leg aðstaða sem byggð var upp fyrir Unglingalandsmótið og Lands- mótið fyrir fimm árum. Ungmennafélag Íslands stendur fyrir mörgum góðum verkefnum. Þar ber að nefna Ungmenna- og tómstundabúðirnar á Laugum í Sælingsdal sem hafa heldur betur slegið í gegn. Starfsemin á Laug- um hófst í byrjun árs 2005 og síð- an hefur búðunum vaxið fiskur um hrygg. Þangað sækja 9. bekk- ingar úr grunnskólum landsins og á síðasta starfsári komu þangað hátt í 2.000 unglingar. UMFÍ er í samstarfi við íþrótta- lýðháskóla í Danmörku og hefur kvóti sá sem Íslendingum stendur til boða verið fullnýttur á síðustu árum. Nám í slíkum skólum er mjög áhugavert og ekki síst þrosk- andi og nýtist síðan þátttakendum alla ævi. Forvarnaverkefnið Flott án fíknar stendur með blóma og hef- ur klúbbum fjölgað jafnt og þétt um allt land. Ungmennafélag Íslands tók fyrsta skrefið með verkefnið Gæfu- spor í fyrrasumar. Gæfuspor er verkefni þar sem fólk 60 ára og eldri er hvatt til að fara út og ganga sér til ánægju og heilsubótar. Verkefnið hófst á fimm stöðum á landinu og í kjölfarið verður framhaldið skoðað með fleiri staði í huga. Frjálsíþróttaskóla UMFÍ verður haldið úti á nokkrum stöðum úti á landi í sumar í samvinnu við Frjálsíþróttasamband Íslands. Frjálsíþróttaskólanum var hleypt af stokkunum í fyrrasumar og tókst vel og í framhaldinu var ákveðið að vinna saman að þessu verkefni í sumar. Göngum um Ísland er lands- verkefni UMFÍ. Verkefnið er unn- ið í samstarfi við ungmennafélög um land allt, ferðaþjónustuaðila og sveitarfélög. Á Íslandi er mikill fjöldi gönguleiða og hafa verið valdar heppilegar gönguleiðir í hverju byggðarlagi. Fjölskyldan á fjallið er einn liður í verkefninu. Settir eru upp póstkassar með gestabókum á 24 fjöllum víðs veg- ar um landið, en öll þessi fjöll eiga það sameiginlegt að tiltölu- lega létt er að ganga á þau. Mark- miðið er að fá fjölskyldur í létta fjallgönguferð og stuðla þannig að aukinni samveru, útivist og um leið líkamsrækt innan fjölskyld- unnar. Í nokkur ár hefur verið haldið úti vefsíðunni www.ganga. is sem hefur að geyma yfir 800 gönguleiðir. Eins og sjá má af þessari upp- talningu stendur UMFÍ fyrir mörg- um spennandi verkefnum. Allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi en umfram allt: Njótum þess að eiga skemmtilegt sumar. Jón Kristján Sigurðsson ritstjóri Landsmót á Akureyri og Unglingalandsmót á Sauðárkróki Sauðárkróki 31. júlí – 2. ágúst Akureyri 9. – 12. júlí

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.