Skinfaxi - 01.05.2009, Blaðsíða 31
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 31
Mælifellshnjúkur, en jarðhiti víða. Þó
eru nokkur hraun við norðurjaðar Hofs-
jökuls. Mestur jarðhiti er á Reykjum og
Steinsstöðum í Tungusveit og hjá
Varmahlíð (Reykjarhóli) í Seyluhreppi.
Gróður er víða mikill, grösugar star-
engjar, mýrar og graslendi en kvist-
lendi lítið og skógar ekki nema lítils
háttar í Hrolleifsdal í Fellshreppi. Gróið
land er 1013 km2. Veðursæld er í Skaga-
firði. Lax og silungur er víða í ám og
vötnum. Fugla- og eggjatekja er í
Drangey og Þórðarhöfða. Skagafjarð-
arsýsla er um 5.230 km2.
Sveitarfélög í Skagafjarðarsýslu
voru 12 árið 1998 þegar kosið var um
sameiningu í þeim öllum nema í Akra-
hreppi. Sameining var samþykkt í öll-
um 11 sveitarfélögunum og þeir hrepp-
ar sem þá sameinuðust voru Sauðár-
króksbær, Fljótahreppur, Hofshreppur,
Hólahreppur, Viðvíkurhreppur, Rípur-
hreppur, Skefilsstaðahreppur, Skarðs-
hreppur, Staðarhreppur, Seyluhrepp-
ur og Lýtingsstaðahreppur.
Sauðárkrókur
Á Sauðárkróki búa um 2600 manns.
Þar er fjölbreytt þjónusta; gisting, veit-
ingar, verslanir, sýningar, söfn, tjald-
svæði, skemmtistaðir, sundlaug,
sjúkrahús, verkstæði o.fl. Nýr og glæsi-
legur íþróttaleikvangur er í miðjum
bænum, sunnan við sundlaugina, þar
sem einnig er strandblakvöllur. Í
Minjahúsinu við Aðalgötu eru m.a.
til sýnis fjögur lítil verkstæði í anda
liðinna tíma.
Brekkurnar ofan við bæinn eru
fornir sjávarkambar, Nafir. Á Nöfum
er útsýnisskífa og gott útsýni yfir
gamla bæinn, sveitirnar í kring og út
á fjörðinn. Uppi á Nöfum eru frí-
stundabændur með aðstöðu sína og
á vorin er hægt að fylgjast þar með
lömbum og folöldum innan girðing-
ar. Golfvöllur og aðstaða Golfklúbbs
Sauðárkróks eru einnig uppi á Nöfum.
Bærinn dregur nafn sitt af Sauðá og
í Sauðárgili er Litli-Skógur. Þar eru
göngustígar og góð aðstaða til útiveru.
Verslun Haraldar Júlíussonar í
Aðalgötunni hefur starfað óslitið frá
árinu 1919, en þar er hægt að upplifa
gömlu búðarstemninguna eins og
hún var á síðustu öld.
Austan við Krókinn er Borgarsand-
ur, tæplega fjögurra kílómetra löng,
svört sandfjara, þar sem gaman er að
byggja sandkastala, fara í gönguferð-
ir eða leika við börnin. Litlu sunnar,
við Áshildarholtsvatn, er fjölskrúðugt
fuglalíf og upplýsingaskilti um fugla.
Frá Króknum er aðeins um hálftíma
akstur í Varmahlíð, Hóla, Hofsós eða
Grettislaug og fyrir vetrargesti tekur
aðeins um 15 mínútur að komast á
frábært skíðasvæði í Tindastóli.
Söfn
Óvíða er sýninga- og safnastarf með
jafnmiklum blóma og í Skagafirði,
þar sem menningararfurinn er bæði
ríkulegur og sögustaðir fjölmargir.
Byggðasafn Skagfirðinga stendur
fyrir sýningum, varðveislu og rann-
sóknum, en það hefur í meira en hálfa
öld sýnt í Glaumbæ hvernig mannlíf
var fyrrum í torfbæjum. Auk þessa
eru fjölmargir aðrir staðir og sýningar
sem áhugavert er að heimsækja, t.d.
Vesturfarasetrið í Hofsósi, Víðimýrar-
kirkja við Varmahlíð, Minjahúsið á
Sauðárkróki, Samgönguminjasafn
Skagafjarðar og Hólar í Hjaltadal.
Hvítabjörninn
Hvítabjörninn (karldýrið), sem veginn
var á Þverárfjalli 3. júní 2008, er til
sýnis á Náttúrustofu Norðurlands
vestra, Aðalgötu 2 á Sauðárkróki. Öll-
um er velkomið að koma og skoða
björninn alla virka daga kl. 8:00–17:00.
Hafa þarf samband ef um annan tíma
er að ræða.